Sunday, 5 May 2013

Páskar, skóli og fleira :)

Seinast þegar ég skrifaði þá sendi ég færsluna inn eftir páska, en hún var skrifuð löngu áður svo að það vantaði páskana inn og svona! haha..
Já páskarnir voru allt öðruvísi! Engin fjölskylduhátið og algjörlega engin partý! alltof heilagt! hahaha.. En ég skellti mér í útilegu með Luis og pabba hans og fórum við í bæ sem heitir Olmos... Bæinn sjálfan sá ég ekki mikið, en hann er svona smábær.. Við vorum mest allan tímann í úthverfi bæjarins sem er frekar fátækt en alveg frábært að upplifa þetta!
Leiðin var frekar löng en ég og Luis sváfum mestmegnið á leiðinni! Stoppuðum svo einhverstaðar hálfpartinn uppí fjalli þar sem var einhver túrista staður því þarna er hægt að fara upp að einhverjum krossi og biðja um kraftaverk! Það var alltof heitt svo að við slepptum því, enda þarf ég ekkert á kraftaverkum að halda ;)
Fyrsti daginn var farið til fólks sem pabbi hans þekkir og fengum mangó ný af trjánum, hitti litla grísi og asna! oog agalega krúttlega fugla sem voru eiginlega bara frekar gæfir! héldum á þeim og allt :) Já og svo fórum við líka á landareign pabba Luisar sem er frekar stór en bara einhverstaðar langt frá öllu! haha.. En þar voru smá mango sem eru bara bestu mango sem ég hef smakkað og einhver annar ávöxtur sem ég veit ekki enn hvað heitir en er ógeðslega góður! Seinni partinn var bara legið í leti, farið og borðað kjúkling.. Síðan gerðum við okkur tilbúin í svefn og vorum svo heppin að frænka Luisar lánaði okkur dýnur til að sofa á og skelltum við þeim undir eitt tré og sváfum undir berum himni! Ég hafði eitthvað minnst á það um daginn að það væri æðislegt að hafa varðeld, svo Luis spurði frænku sína um eldivið og við gerðum varðeld :D!
Næstu 2 dagar eru svolítið í rugli í hausnum á mér, ekki viss hvaða dag ég gerði hvað! hahah .. En við fórum einn daginn að smá á og vorum þar að liggja í leti allan daginn! ég og Luis gerðum ceviche fyrir liðið og skelltum okkur svo í ána að baða okkur! hahah hún var frekar grunn svo þetta var bara frekar kósý .. svona þangað til einhverjir smáfiskar fóru að narta í Luis, hann var ekki alveg sáttur með það! En ég get allavegana sagt að ég hafi þurft að baða mig í á! Ekki var nein sturta í ferðinni , já og klósett aðstaðan var hola í jörðinni! hahah alveg æðislegt :) jáá síðan var eldað alltof gott kjöt um kvöldið og borðað það og drukkið mangó djús þar sem við áttum alveg helling af mangó! Og hinn dagurinn fór bara í letilíf! það var svo heitt að við nenntum engu, en það var ágætt !
Áður en við fórum heim kíktum við í kirkjugarðinn þar sem afi Luisar er jarðaður og er þetta eitt skrítnasti kirkjugarður sem ég hef séð! enginn er grafinn í jörðu þannig séð! hann er eins og er hérna á myndinni, ofan á jörðinni( þetta er samt ekki garðurinn þar sem ég þorði ekki að taka myndir þar, en þetta er nákvæmlega eins) og fannst mér frekar leiðinlegt að sjá hvað var ekki farið vel með allt þar :/ En það eru nú miklu fleiri sem búa hérna þannig að það eru miklu fleiri sem deyja líka og ekki mikið pláss svo ætli ég skilji þetta ekki ..
Ferðin heim fór bara mest í svefn hjá okkur Luis :)
Eftir þessa ferð byrjaði síðan skólinn og hefur hann alveg verið fínn :) Ákvað að skipta úr ferðamálafræði í arkitektúr sem var góð ákvörðun þó að orðaforðinn minn í spænsku er ekki alveg nógu góður fyrir að skilja tímann! Held ég myndi varla skilja þetta á íslensku núna! haha.. ég byrjaði viku seinna en allir og fannst ég vera svona 3 mánuðum eftir á! En þetta er að koma núna .. og það besta er að prófessorinn sem sér um arkitektúr er svo sama um hvort ég er þarna og geri eitthvað! hahah.. Svo kynntist ég alveg fínum stelpum svo þetta hefur bara verið gaman! Svolítið erfitt stundum að fylgja samræðunum þegar allir tala ofan í annan, en þetta kemur vonandi :)
Síðan skellti ég mér einnig í eitt mormóna brúðkaup og fannst öllum hérna svo fyndið að ég væri að fara í brúðkaup án áfengis! Því hérna verður fólk bara fullt og djammar í brúðkaupum! En ég sagði að þau brúðkaup sem ég hef farið í heima hafa nú ekki verið svona klikkað djamm eitthvað! bara smá kampavín kannski :) En jáá það var fínasta brúðkaup, frekar lítið og seint á fimmtudagskvöldi! frekar skrítin tímasetning, en þetta var því daginn eftir fóru þau í musterið í Lima til að giftast fyrir alvöru! fyrir guði! Svo heilagt allt saman :) Samt bara svo gaman að því! og auðvitað langaði mörgum að spjalla við mann um þetta og hitt ! endaði að fara heim um 3 leytið og skóli daginn eftir ! haha..
Seinustu helgi skellti ég mér til Lambayueqe með Luis og var alveg æðislegt! Vorum smá að halda uppá 7 mánuði saman og var það bara gaman! borðuðum besta kjöt sem ég hef fengið hérna í Perú og Ceviche sem er náttlega bara besti matur sem ég borða hérna! og mikið af snakki og Canchita sem er einhverskonar steiktar maís baunir! Samt þær eru allt öðruvísi hérna en ég eeelska canchita! Svo var 2 farið í sundlaugina, sem var btw ísköld! haha .. En þessir dagar voru yndislegir!
Jáá svo núna í gær fór fyrsti skiptineminn frá okkur hérna og var því smá kveðjupartý sem var bara gaman :) fann til í löppunum í allan gærdag! hahah ..
Hef svosem ekkert mikið meira í fréttum :)
Styttist allt í heimkomu! Ekki nema 2 mánuðir :O og í dag er ég einmitt búin að vera í Perú í 8 mánuði! Tíminn líður skuggalega hratt! En það er svosem ágætt þar sem ég sakna allra heima svo mikið! get ekki beðið :D En verður erfitt að fara :(

Þangað til næst
Kossar og knús frá Perú
Freydís Þóra

p.s. það eru ekki enn komnar neinar myndir, er eitthvað svo léleg við þetta allt saman! En ákvað nú samt að blogga smá fyrir ykkur :)

Tuesday, 2 April 2013

Trujllo, Tumbes og 5 min í Ecuador!

Jæja, þá er einu öðru ferðalaginu lokið! Skellti mér í "norður ferðina" með AFS .. Hún var semsagt 3 staðir í norður Perú, Trujillo, Chiclayo og Tumbes .. En auðvitað sleppti ég Chiclayo þar sem ég bý þar .. Síðan eftir ferðina var midstay camp, afsakið en ég hef ekki hugmynd um hvað það er á íslensku:/, og var það haldið í Tumbes líka, allir skiptinemarnir saman í 2-3 daga :)
Fyrst var farið til Trujillo og var alveg yndislegt að hitta alla, eða þá sem komu, og vera með skiptinemunum! Trujillo er mjög falleg borg og ekki eins heitt þar og hérna svo ég elska hana bara! Fyrst var bara farið í göngutúr aðeins um bæinn og skoðuðum um .. Síðan voru farið á einhver 2 söfn sem ég náði ekki mikið sögunni af því maður var eiginlega alltof upptekinn að vera loksins með skiptinemunum aftur! Einnig byrjaði ég að kynnast æðislegu fólki þar sem ég var greinilega hálf sofandi fyrstu dagana í Lima, kynntist nánast engum þar! hahaha..
Seinasta daginn í Trujillo fórum við svo á ströndina! Alveg ótrúlega falleg ströndin þar en svo alltof heitt þannig ég lá bara í skugganum! hahaha .. Svo fengum við ekki að fara í sturtu áður en við fórum í rútuna til Chiclayo svo ég ákvað að skella mér ekkert í sjóinn, þótt það var alveg fáránlega freistandi!
Svo var skemmtileg 3 tíma rútuferð til Chiclayo í ógeðslegri rútu, svo lítil og ekkert pláss! Ömurlegt alveg -.-
Síðan var það bara smá chill dagar í Chiclayo með Luis, en greyið var með sýkingu í maganum svo hann var ekki sá allra hressasti :) En við skelltum okkur samt út með skiptinemunum eitt kvöldið og dönsuðum af okkur rassgatið! Svo gaman .. hahaha..
Svo skelltum við okkur til Tumbes, í annarri ömurlegri rútu! Ekkert pláss og það í 8 tíma held ég! Svaf varla neitt á leiðinni -.- Ekki var það skárra að þegar við komum til Tumbes þurftum við auðvitað að bíða í svona hálftíma eftir sjálfboðaliðunum til að sækja okkur, og það klukkan 5 að morgni til! Fengum loksins að sofa aðeins ! en bara til hálf 8 því klukkan 8 var morgunmatur og svo áttum við að gera eitthvað! En ekkert var gert fyrr en um 11 leytið og var okkur bara sagt að við værum að fara á ströndina :) Tókum rútu í svona hálftíma og þaðan þurftum við að taka bát yfir eitthvað vatn sem var frekar kúl! Síðan komum við að ströndinni þar og var það æðislegt! Við vorum nánast ein þar allann tímann og var veðrið gott, sjórinn heitur og passlega góðar öldur! Svo þurftu ég auðvitað að stíga ofaná eitthvað í sjónum og meiða mig og neiddist til að slaka aðeins áá, en það var gott, var farin að fá sólsting! Svo skelltum við okkur aftur í bátana og fengum eh ferð um vatnið að sjá einhverja fugla en þar sem allir voru að tala svo mikið í bátnum heyrði ég ekkert í kallinum sem var segja frá þessu! hahha .. svo fórum við á krókódílaeyjuna og var þar allt fullt af allskonar krókódílum! og þeir litlu voru svo krúttlegir! Svo var hægt að taka mynd með krókódíl, en þar sem röðin var svona hálftími nennti ég því nú ekki! En svo missti einn skiptineminn krókódílinn og hann hljóp í burtu í gegnum hópinn! hahahaha.. Svo fyndið þar sem hópurinn er svona 60% stelpur! Eftir það var hádegismatur og fengum við ceviche og eh hrísgrjón með litlum kolkröbbum! Elska kolkrabba! Síðan komum við heim seinnipartinn og var planið bara sturta og kvöldmatur og svo bara allir með öllum um kvöldið! æðislegt að lifa á hóteli með fullt af vinum þínum :)
Daginn eftir skelltum við okkur í drullubað! Hahaha.. ég ætlaði sko ekki að þora útí en svo skellti ég mér auðvitað! Þrátt fyrir að hafa verið verulega ógeðslegt var þetta verulega gaman! Fyrir utan partinn að hafa drullu allstaðar og engin sturta! Skoluðum okkur með smá vatni og fórum í hádegismat! Síðan var farið á ströndina það sem eftir var af deginum, það var fínt til að þrífa sig aðeins! Um kvöldið var síðan smá partý á þakinu :)
Seinasta daginn í ferðinni var farið í bæjarskoðun og röltum við aðeins um bæjinn og skoðuðum okkur um! Fengum gæslu með okkur, fimm lögreglumenn röltu með okkur um bæinn þar sem þetta er frekar hættulegur staður víst! Eftir það var frír tími því allir voru að koma til tumbes í midstay búðir (ekki alveg með á hreinu hvað þetta er á íslensku), búðir sem eru semsagt í miðjunni á dvölinni okkar hérna :) Fólk var að koma allan daginn og var bara chillað langt fram á kvöld ..
Næstu 2 dagar fóru í það að tala um reynsluna okkar hérna, og fékk minn hópur tíma, og vera á ströndinni! hahah .. Að fá tíma hérna er frekar gaman því 5 mín hjá fólki hérna er að minnsta kosti 20 min!
Svo fékk ég að vita að ég þurfti að vera 2 dögum lengur í Tumbes því ég þurfti að fara til Eucador, en fór bara yfir landamærin og til baka -.- Var hjá fjölskyldu sjálfboðaliða og dó úr hita allan daginn held ég! og ekki með neina inneign svo ég gat ekki náð á neinum skiptinemanum þar! Hitti þau reyndar síðasta kvöldið og var það fínt :)
Síðan ég kom heim er lítið annað en leti búin að vera í gangi! Jú ég skellti mér í eitthvað partý á ströndinni um miðjan sunnudag og hálf veik! hahah var samt mjög gaman! En framundan er ekkert nema að njóta frísins og læra marinera! Þetta verður eitthvað!

Kemur vonandi eitthvað blogg í framtíðinni, en þar sem ég er extraléleg lofa ég ekkert fljótlega! hahaha..

Kossar og knús frá Perú :)
Freydís Þóra

Myndir koma seinna þar sem ég finn ekki snúruna til að setja þær í tölvuna mína :/ 

Tuesday, 5 February 2013

Jaén, Lima, Huanuco, Cerro de Pasco, Junin, La Oroya, Huancayo og Tingo Maria á aðeins 14 dögum!


Jæja þá loksins kemur þetta blessaða blogg! Vúúhúúú :D Já ég skellti mér semsagt í 14 daga ferðalag .. eða 12 held ég, að ferðast tók nú sinn tíma svo þetta er allt í rugli í kollinum! hahaha.. En jáá og hafði hann Luis minn með mér sem var yndislegastur að draga mig á hina og þessa staði sem eru ekkert ferðamanna staðir en mjööög gaman að skoða.. Allavegana, ætti að byrja á fyrstu ferðinni!

Fyrst fórum við til Jaén með frænku hans Luisar því mamma hennar býr þar, frítt húsnæði!! hahah.. Fyrsta daginn skelltum við okkur í sund, hélt nú bara venjulegt sund, enda steikjandi hiti! en neinei þetta var einhver agalega krúttlegur garður með dýrum, leiktækjum, veitingastað, bar og sundlaug :) agalega kósý :D og eyddum nú bara mest öllum deginum þar ! Skemmtilegt það að Luis er ekkert vel við sundlaugar því hann fékk einhverja sýkingu úr sundlaug fyrir svona 5 árum, eeen ég dró hann nú með mér og hann skemmti sér konunglega :D! Kvöldið fór svo bara í hvíld og sjónvarpsgláp, og reyna að sofna fyrir hita!! Daginn eftir var planað að fara að einhverri á, en enginn bauðst til þess að keyra og leiðin frekar hættuleg .. Svo einn vinur frænku Luisar bauð okkur í "sveitina" (hef enga aðra lýsingu á þessu).. Ekkert langt frá Jaén, uppí fjalli og þar var hús með nokkur húsdýr og svo bara frumskógur! Dásamlegt! Fékk alveg að sjá Mangó, Kakóávöxtinn, kaffiávöxtinn og fullt af blómum og öðrum ávöxtum bara þarna á trjánum! og auðvitað fékk ég að smakka allt! :D Svo voru þau líka með svona lítil vötn með fiskum frá Níl í, eða svo sögðu þau, ef ég skyldi rétt ! hahaha.. Deginum var bara mestmegnis eytt þarna sem var alveg dásamlegt! svo fallegt og að sjá landslagið og svona! Um kvöldið fundum við Luis okkur þennan agalega krúttlega pizzastað með alveg geggjaðri pizzu (erfitt að segja það hérna ef þetta er ekki dominos eða pizza hut!) og áttum bara yndislega stund þetta kvöld :D! Síðasta almennilega daginn var síðan farið að ánni, sem var ekkert eins spes og allir höfðu sagt mér en landslagið í kring var æðislegt og fjöllin svo ólík fjöllunum heima! og svona litlir básar þar sem fólk kemur stundum saman og drekkur og hefur gaman og stundum tónleikar og eitthvað :) Þegar við komum til baka var bara rólegheit og seinasti dagurinn fór í að pakka, þrífa smá og smá sund aftur! Það var svo gott að komast í þessa sundlaug! svo fáránlega heitt þarna! Svo var bara lagt af stað heim aftur.. Því við höfðum einn dag í chiclayo til að þrífa föt, kaupa miða og gera til fyrir kaldari ferð í hálendið!

Ooog um kvöldið þann dag sem við komum heim lögðum við af stað í okkar annað ferðalag, en bara 2 í þetta skipti! Fyrst þurftum við að fara með rútu til Lima og tekur það ekki nema 12 tíma .. Nema heyrðu, það var svo mikil umferð að það tók okkur 14 tíma að komast á rútustöðina - held alveg 3 eða eitthvað bara að ferðast innan Lima - svo við vorum klukkan sirka 10 um morguninn í Lima! Og það leiddi að því að við misstum af rútunni okkar til Huanuco og næsta ferð var ekki fyrr en 21:15 svo við þurftum að eyða deginum í Lima! Sem betur fer fengum við nú að skila bakpokana eftir á rútustöðinni, hefði ekki vilja burðast með 10 kíló á bakinu plús litla bakpokann! haha nei takk ( ein ekki alveg undirbúin í stórt bakpokaferðalag!) Já þá röltum við bara um Lima, byrjuðum á að fá okkur morgunmat, samloku og safa :) Síðan fórum við í eitthvern riiisa riiisa stórann markað með fullt af æðislegum hlutum, því miður gleymdum við okkur aðeins í að skoða og tókum engar myndir þar :/ En fann þar Padington hatt, því Padington er nú frá Lima! langaði ýkt mikið í hann, en kostaði of mikið!! Svo eru fullt af eeeld eeeld gömlum myndavélum og ég og Luis vorum alveg sjúk í að kaupa eina! Shiit hvað mig langar í eina! svo æðislegar!! Eftir markaðinn fundum við okkur einhvern garð og skoðuðum einhvern lítinn markað (markaðir eru aalllstaðar!), settumst niður, sáum leiklistarskóla og röltum um garðinn. Síðan var kominn tími á hádegismat og kom ekkert annað til greina en ceviche - hrár fiskur með sítrónu, salti, pipar, lauk og svo kartefla til hliðar og mais - enda elskum það bæði! Eftir hádegismat ákváðum við að labba lengra og fundum Maria Jesús garðinn .. Mjög mjög mjöög fallegur garður með öllu, fótboltavöllur, körfuboltavöllur, fólk að dansa, tennisvöllur oog bara svo margt fleira og við ákváðum að vera bara þarna þangað til að rútan færi, svona til að villast ekki í Lima! Síðan beið okkar 8 tíma rútuferð í viðbót! gaman gaman! Þegar við komum svo loksins til Huanuco fórum við beint heim til fólksins sem við gistum hjá sem er mormónafjölskylda og er alveg frábær í alla staði! Þau eru samt frekar fátæk svo húsið er mjöög lítið, strákarnir 2 sofa í koju og hjónin í hjónarúmi en er þetta eiginlega bara eitt stórt herbergi allir saman, smá veggur milli strákanna og hjónanna. Klósettið úti og eldhúsið í öðru húsi en mjög lítið! Vildi ekki vera að taka myndir af þessu, því hélt nú að það væri kannski ókurteysi ..Allavegana við fengum okkur að borða, reyndum að gera uppkast af plani fyrir næstu daga og lögðum okkur! Svo tóku pabbinn og 2 strákarnir mig með sér á rúntinn meðan mamman og Luis voru að elda! hahaha.. og fékk að sjá smá af bænum :) Heima var svo maturinn tilbúin og var borðað, lagað planið okkar góða og svo farið að einhverju vatni með hundinn að synda og njóta tilverunnar :D Svo notarlegt! Seinnipartinn röltum við Luis aðeins um bæinn, keyptum okkur lyf því við vorum að fara í 4330 m hæð, svona til að verða ekki veik! Síðan komið heim, borðað, pakkað niður aftur og skellt okkur að sofa :)
Daginn eftir var planið að fara til Cerro de Pasco og gerðum við það, í 4330 m hæð og ískalt!! Pabbinn skutlaði okkur á stöðina til að fara með bíl til Cerro. Tók það um 2 tíma held ég og þar sem við tókum pillurnar á leiðini steinrotuðumst við, agalega erfiðar þessar pillur! Þegar við vorum komin til Cerro pöntuðum við okkur gistingu, skildum bakpokann eftir og fórum svo að skoða dýragarðinn úr steinum, semsagt stórir steinar sem líta eitthvað út eins og dýr, sá ekki mikið meira en íkorna samt! Eeeen vóó hvað er erfitt að labba svona hátt uppi! Náði ekki andanum, var dauðþreytt ! Og okkur tókst nú að villast þarna því við höfðum engan leiðsögumann og þetta er bara risastórt opið svæði! En sem betur fer fundum við einhverjar stelpur sem hjálpuðu okkur að hoppa yfir gaddavír og klifra kletta! Bara gaman að því, een svo var bara myndataka í svona 20 min held ég! haha gaman að vera ljóshærð! Síðan heyrðum við í þrumum og sáum rigninguna og skýin nálgast svo við flýttum okkur niður og fundum combi(smárúta) til að komast aftur í bæinn.. Þar ákváðum við að leggja okkur, því þetta var nú alls ekki auðvelt að vera þarna, en það tók sinn tíma þar sem það eru engir ofnar í Cerro og það var ííískalt!! Þegar við vöknuðum aftur var klukkan svona 9 um kvöldið svo við ákváðum að drífa okkur út og finna mat .. Fundum þennan krúttlega safabar og fengum okkur safa og ávaxta salat :) Eftir það röltum við bara í kuldanum um bæinn og fundm meira að segja snjó og fórum í snjóslag! því miður var engin myndavél með í þeirri ferð! Síðan var bara farið inn og sofa! Daginn eftir var vaknað nokkuð snemma, pakkað niður og síðan farið að skiltinu þar sem stendur : Bæjarstjórn Pasco býður þig velkomin/nn til hæðstu borgar í heimi .. Þurftum sönnun! Svo ákváðum við að kíkja á markaðinn en var ekkert ofmerkilegt neitt þar en hefði ég verið ein hefði ég villst! Eftir það skelltum við okkur uppí næstu rútu og til Junin!
Þegar við komum útúr rútunni í Junin og löbbuðum niður eina götu kom á móti okkur einhver skrúðganga með fólki í allskonar perúskum fötum og tónlist .. alveg æðislegt að sjá þetta! Síðan fórum við og hittum eitthvað fólk sem Luis þekkir  þarna og fengum hjá þem súpu og brauð :) Síðan röltum við aðeins um bæinn, tókum myndir og fundum geggjað krúttlega lestarstöð! Síðan ákváðum við að halda ferðinni áfram og ætluðum að fara til Ticlio þar sem átti að vera snjór en bílstjórinn hætti við á seinstu stundu og við enduðum í La Oroya, sem er alveg fínn staður. Fjöllinn þar eru alveg æææðisleg! Hvítur steinn! og svo lestarteinar allstaðar því það eru víst gullnámur þarna allstaðar í fjöllunum .. Þarna var klukkan að ganga 6 og við ýkt pirruð útí bílstjórann svo við fundum okkur stað til að gista, tókum loksins sturtu, því þarna var heitt vatn í fyrsta skipti í 4 daga og í öllum þessum kulda! Skelltum okkur síðan út að skoða okkur um, borða og hafa það kósý :) Morguninn eftir skelltum við okkur svo til Huancayo..
Um leið og við vorum komin til Huancayo ákváðum við að drífa okkur að kaupa miða til Huanuco til að vera viss um far .. En nei þá var bara eitt sæti eftir :O Svo við höfðum ekki grænann grun um hvað við áttum að gera! Skelltum okkur í aðalgarðinn til að hugsa aðeins og ákváðum að þetta myndi einhvernveginn reddast :) Síðan röltum við í markaðinn og þar um  .. tók sinn tíma enda ekki nema 8 húsaraðir eða svo! En ótrúlega gaman og fullt af flottum hlutum sem mig langaði að kaupa! een hugsaði útí það að það væri varla einhver tilgangur með því! hahaha.. En ég fékk nú samt 4 armbönd og keypti mér eina þykka og góða peysu .. mín var kremuð og Luis keypti sér eins bara mosagræna! Svo krúttleg í stíl sko! hahaha.. Eftir það ákváðum við, fyrst við vorum að fara daginn eftir til Tingo Maria frá Huanuco(planið, en ætluðum með fjölsk. í Huanuco) afhverju ekki þá bara að taka frá Huancayo til Tingo Maria .. Svo við fórum og keyptum 2 seinustu miðana þangað! Hjúkk! Fórum síðan í verslunarmiðstöðina til að borða og fara á almennilegt hreint klósett (almenningsklósett hérna ekkert svo æðisleg!) og eftir það tók bara við rútuferð til Tingo Maria!
Við vorum í Tingo Maria klukkan 6 um morguninn svo það var ekki búið að opna taxastöðina sem fer með fólk í frumskóginn sem er allt í kring svo við þurftum að bíða, röltum um borgina/bæinn(ekki viss) og komumst að því að hún er ekkert svakalega falleg neitt! Þarna borðar fólk samt snáka og apa og ætlaði Luis sko að leyfa mér að smakka, en fundum ekki veitingarstaðinn með þessa hluti .. Svo loksins opnaði Taxastöðin og við fórum fyrst að einhverjum æðislegum helli uppí fjalli og í miðjum frumskóginum .. Í hellinum voru æææðislegir grænir fuglar, frekar óþolandi hljóð, en þeir voru svo fallegir! een ekki náðist mynd af þeim, frekar hraðir! ooog leðurblökur og svona þúsund leðurblökuegg! Vorum þarna heillengi, en hellirinn er ekkert það stór, það var bara svo margt að skoða inní honum því steinnin í honum er svo fallegur og fullt af allskonar skordýrum og svona! oog vatn beint úr fjallinu var frekar þæginlegt þarna! Smá heitt í frumskóginum, og skrítið að koma úr öllum þessum kulda í allan þenna hita! Síðan eftir hellinn löbbuðum við aðeins lengra inn í skóginn og fundum litla tjörn með svo fallega hreinu vatni! alveg yndislegt :) En allt í einu heyrðum við eitthvað urr en sáum ekki neitt neinstaðar og Luis vildi nú samt endilega halda áfram, en ég var of hrædd svo við snérum við! hahaha.. En þarna smakkaði ég líka kókosmjólk beint úr kúlunni og ávöxtinn líka .. Hélt nú að þetta væri betra ! Eeen allavegana, næsta stopp var síðan einhver foss .. Þegar okkur var keyrt að honum komum við að krökkum sem voru að leika sér með letidýr! aaaw svo krúttleg! ég vil eitt með mér heim! Eeen svo tók við 10 min ganga að fossinum og þegar við komum þangað var fólk að synda, og fossinn er eiginelga svona tvöfaldur .. fyrst einn og smá pollur til að synda, sem fer niður í 2 litla fossa og í anna poll til að synda og við vorum í neðri og enginn var þar, bara í efri, og ákváðum að skella okkur að synda! en ekki hvað! og skemmtum okkur konunglega! fórum svo að efrifossinum og skoðuðum okkur um og keyptum okkur grillaðan banana og héldum síðan af stað niður til Tingo Maria aftur og fundum okkur bíl þar til að fara til Huanuco :)
Við vorum komin aftur til Huanuco um hádegi, en svo svo svo þreytt því ekki sváfum við mikið í rútunni á leiðinni til Tingo Maria svo það var bara borðað og svo lögðum við okkur! Sem var kannski aðeins of lengi! hahaha.. vöknuðum um 6 leytið og þá var bara fengið kvöldmatur og talað aðeins við einhverja mormóna og svo fjölskyldustund saman :) Fyrst var ég svolítið hrædd því þau komu með sálmabækur og mormónsbók svo ég vissi ekki við hverju ég átti að búast en þetta var bara nokkuð gaman! vorum bara að spjalla um fjölskyldur og tengsl og eitthvað .. oog svo fórum við í einhvern leik með vatni og eitthvað sem var geggjað gaman! hahah.. Síðan var það bara farið að sofa :) Það er alveg ótrúlegt hvað maður var þreyttur eftir allt þetta ferðalag! Dagurinn eftir fór ekki í mikið annað en að sofa, pakka, borða, vera með fjölskyldunni , rölta um Huanuco og taka myndir :) Einnig fórum við á körfuboltaleik hjá eldri stráknum í fjölskyldunni sem var bara mjög gaman og eyddum kvöldinu með þeim og að klára að pakka því að við þurftum að fara morguninn eftir .. Jáá og þann morgun vaknaði ég 7 til að taka ís ís ís kalda sturtu og það var nú ekkert það heitt úti heldur en ég er enn á lífi! haha.. een jáá og pakka og borða, svona því framundan var 24 tíma ferðalag heim til Chiclayo! eeen ekki má gleyma því að mamman gaf okkur brauð til að borða á leiðinni því í Huanuco er eitt það besta brauð sem ég hef lengi smakkað! Svo var kvatt og lagt af stað heim!
Ferðalagið var ómerkilegt nema það að við komum 19:16 til Lima og rútan okkar til Chiclayo fór klukkan 20:00 en var ekki á sama stað svo við þurftum að drífa okkur í að ná bakpokunum okkar úr rútunni, síðan nánast hlaupa á næsta stað til að kaupa miða og koma okkur í rútuna. Náðum því sem betur fer á tíma og náðum meira að segja að borða aðeins áður en við fórum í rútuna ! Síðan var bara farið heim :)
Svo þegar heim komið langað mig í myndirnar, til að geta bloggað og sett inn myndir en nei tölvan mín var eitthvað treg svo Luis þurfti að taka kortin með sér heim og setja í sína tölvu! En í gær fékk ég þær svo loksins og eru þær komnar á fésið :D
Síðan ég kom heim hef ég lítið gert en að hanga heima, sofa .. Reyndar skellti mér í að borga 2 ferðar með AFS hérna til Trujillo og Tumbes sem er seinna í febrúar og svo aðeins með Luis :)
Í gær töluðum við, ég og Luis, svo við mömmu, Halla og Shek og var það alveg æðislegt! Og núna er planið að vera hérna með Mauruh í dag og klára að horfa á seinustu 2 þættina af Gossip girl :) hahaha..

Ætli þetta sé nú ekki komið nóg í bili :)
Myndir komnar inn á facebook en ekki í réttri röð og kann ekki að laga það :/ een ætla að setja inn bæina á myndirnar, en er ekki búin að því .. bara láta ykkur vita :)

Besos!
Xoxo

Freydís Þóra ferðalangur!

p.s. sorry að það eru engar myndir en hef meira en 500 myndir og allar í vitlausri röð og ætlaði að setja inn einhverjar, en það er bara svo ruglingslegt að fara í gegnum þetta! Svo þið verðið bara að skoða þær á facebook :)

Monday, 7 January 2013

4 mánuðir!

Váváváá! Ég er búin að vera hérna í 4 mánuði og er alveg óendanlega léleg í að blogga :/ Svo ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja ..
hmm...

Jáá, í nóvember átti ég afmæli sem var bara fínasta afmæli :) Fékk köku og fórum svo og dönsuðum af okkur lappirnar langt fram á nótt! Svoo gaman! Síðan átti Luis líka afmæli og þá fór ég út með bekkjarfélögum og það var bara nokkuð gaman líka :) Einnig tókst mér að brenna svo illilega á mér andlitið rétt fyrir afmælið hans Luisar að ég var rauðari en tómatur, svo engar myndir þaðan! hahahah... Síðan var það bara skóli, þurfti að gera power point kynningu á spænsku um Evrópu með einum skiptinemanum og við fengum 18/20 í einkunn ... Hæðsta einkunnin í bekknum! Wúúhúúú :) Síðan þurfti ég líka að syngja fyrir eitthvað lokaverkefni í ensku -.- eeen lenti þar í 3. sæti! hahahaha .. en fékk medalíu .. meira en aðrir geta sagt! hahah..
Svo kom þetta blessaða sumarfrí með tilheyrandi, semsagt bruna .. oog á öllum líkamanum í þetta skipti! Var svo slæmt að ég gat ekki hreyft mig í nokkra daga! FÓLK, MUNIÐ EFTIR SÓLARVÖRN!! hahaha...
Oog næst voru jólin og fékk ég að fara til Cajamarca sem er svoo fallegur bær, og kalt þar (kaldara), svo ég var yfir mig ánægð að fara þangað! Skoðaði Inca böðin, þar sem Incarnir hafa átt að baða sig í heitu vatni frá jörðinni, fannst nú nokkuð gaman að finna það hérna í Perú líka :) Síðan sá ég dauða naggrísa :( Að fólk hérna skuli voga sér að borða þetta!
Jólin sjálf voru æðisleg. Klukkan 2 á aðfangadag fékk ég að tala á skype við fólkið heima þegar þau voru að opna pakkana og var það alveg yndislegt að fá að vera smá með! Fór síðan að gera mig til uppúr 8 þar sem fólk fór að mæta klukkan 10 .. Klukkan 12 byrjaði fjörið! Fyrst var farið með bæn og þakkað fyrir .. um allt bara , hahah síðan pakkar gefnir til fólks og allir opna á sama tíma :) Ég fékk hippa buxur, maraguy sápu og klút frá Cajamarca :) Eftir það var LOOOKSINS borðað, oog það var kalkúnn... Já um morguninn var hann bara eitthvað að tjilla í þvottahúsinu, síðan drepinn og eldaður! hahah .. Jáá eftir matin byrjaði síðan partý og systur mínar entust ekkert lengi svo ég var bara ein þarna með frændfólki mínu sem ég varla þekkti en sumir voru nú verulega nice og spjölluðu nú við mig :) Næstu 2 dagar fóru í það að hanga uppí rúmi að lesa bók sem ég fékk frá ömmu og afa í jólagjöf og horfa á kóreska þætti með Isabel .. hahah það var samt alveg ágætt svona að hanga inni í rigningunni og kuldanum, og kósý svona yfir jólin :) Síðan fór ég heim aftur og milli jóla og nýárs skrapp ég í afmæli til mágar míns og gisterý með Mauruh, Hönnuh og Luis .. Louis, frá þýskalandi, var líka þarna mest allt kvöldið og var það alveg geðveikt! Svo á áramótunum sjálfum fór ég í mat til Ömmu og voru þar ættingjar sem ég hafði aldrei hitt áður... Á eina litla 3 ára frænku sem er alveg roooosalega krúttleg, agalegur pósari líka! hahaha var alveg yndislegt! Eftir 12 var farið heim og fór ég svo með Luis og fjölskylduni hans til ömmu hans og þar fékk smá mikið að finna fyrir því að ég er ljóshærð og öðruvísi hérna! hahha .. Þetta hverfi var frekar svona fátæklegra og það voru allir krakkarnir úti að leika sér og voðalega krúttlegt .. Svo fór ég og Luis að kaupa vatn handa mér og þegar við ætluðum aftur til ömmu hans voru krakkarnir allir fyrir framan dyrnar að biðja mig um að segja eitthvað á ensku og ætluðu ekki að hleypa okkur inn! En við fengum nú að komast inn .. Eeen það er ekki allt .. þegar við vorum að fara  útí bíl komu krakkarnir hlaupandi með myndavél og ætluðu að fá mynd! Ég fór bara inn í bíl een þá vildu krakkarnir ekki fara af bílnum og voru að reyna að taka myndir! Hahahahah .. svooo skellti ég mér í partý með Luis, Alex, bróðir Luisar og kærustunni hans heima hjá frændfólki Luisar og var komin heim 8 um morguninn, nokkuð góð áramót!
Síðan þá hef ég lítið gert af mér held ég .. Skellt mér á ströndina og ákvað nú ekki að brenna í þetta skipti :) Eldað lasagnea með Luis og Mauruh heima hjá Mauruh því mamma hennar vildi sko athuga hvort að Luis væri nógu góður fyrir mig .. og hún samþykkir hann allavegana ! hahah... Já og í dag fór ég að kveðja mormóna sem voru að klára missionið og eru á leiðinni heim til sín eftir 2 ár í burtu ! Vinir Luisar augljóslega en ég fékk alveg smá tilfinningu um hvernig þetta verður þegar við förum héðan! Það verður noookkuð erfitt :/
Jááh og plönin á næstunni er að skella mér í smá ferðalag með Luis :) Síðan ferð með AFS, aðra með Mauruh, Diönu og systir Mauruh .. ooog svo aðra AFS ferð !
Svo komst ég einnig að því að ég byrja ekki í skólanum fyrr en í apríl! svo ég hef allan mars til að gera einhvern andskotann! Nei segi bara svona .. verð nú að njóta frísins líka :)

Held að þetta sé nú komið .. allavegana af því sem ég man!
Afsakið óskipulagið á þessu bloggi, fannst ég einhvernveginn bara þurfa að koma þessu einhvernveginn frá mér á minn hátt :) Svona myndi ég allavegana segja þetta í persónu :)

Kossar og knús frá Perú
Chau!

Freydís Þóra

p.s. það koma inn myndir á facebook bráðum .. held að það sé nú bara auðveldara að notast við það þar sem ég er með það opið :) 

Friday, 2 November 2012

Skóli og frí... Lítið að gera

Starbuks, okkar bestu vinur hérna!
Já afsakið letina í mér hérna á þessu bloggi en það hefur bara fátt verið að gerast svo ég hef skrifað lítið. Síðan ég kom frá Cajamarca hef ég bara verið í skólanum og verið með skiptinemunum og Luis.
Fyrsta helgin eftir að ég kom heim fór ekki í mikið, nennti ekki í partý með skiptinemunum á föstudeginum því mig langaði bara lítið að fara að drekka og eitthvað svoleiðis svo ég ákvað að fara bara út í göngutúr með Luis. Skiptinemarnir fannst það eitthvað skrítið og héldu nú að það væri nú eitthvað að mér, en var bara löt. Svo endaði helgin bara í leti!
Næstu 2 vikur fóru bara í skólann og frí og hanga með skiptinemunum. Held ég hafi lítið spennandi gert.
Seinasta vika fór svo öll í letilíf! Allir krakkarnir í skólanum voru í prófum, miðannarprófum, og við þurftum ekki að taka þau. Við tókum nú samt eitt próf, í ensku, og það var nú bara gefið próf. Við nenntum ekki einu sinni að bíða eftir einkuninni, því okkur var svo sama, hahaha...
Seinastu helgi kom svo Diana heim og þá ákváðum við skiptinemarnir að koma saman og búa til pizzu.

 Án efa sú versta sem ég hef smakkað, því ég kann ekkert á hráefnin hérna svo ég setti bara eitthvað á pizzuna, var ekkert gott. Þannig það endaði með því að ég borðaði bara eina sneið! haha.. Síðan fór ég bara heim snemma, var þreytt og Diana líka. Daginn eftir fór Diana og dagurinn fór í letilíf.
Síðan hefur þessi vika farið smá í skóla og smá í leti líf því það var frí á mánudaginn, miðvikudaginn og fimmtudaginn. Samt ekki á mánudaginn en okkur var sagt það svo við fórum ekki í skólann, á miðvikudaginn því kennarinn var ekki og á fimmtudaginn því það er einhver dagur dauða fólksins eða eitthvað álíka. Í gær flutti síðan Maurah, annar belgíski skiptineminn, inn til mín því það hafa verið vandamál í fjölskyldunni hennar og þetta verður bara æðislegt að hafa hana hérna :)
Luis að elda :)
Í dag var síðan bara gaman í skólanum, ég og Maurah hlógum mikið í tíma, bara að hvor annarri samt. Síðan eftir skóla fórum við heim með einni bekkjarsystur okkar, Andreu, og Luis kom með og eldaði handa okkur ótrúlega góðann mat. Sagði við hann að ég yrði að taka hann með heim bara til að láta hann elda ofaní mig þegar ég hef ekki mömmu! En honum leyst ekkert á það, því honum langaði að hitta mömmu, hahaha.. Já síðan vorum við bara heima hjá Andreu til hálf 10 í kvöld og við forum heim til okkar, mín og Mauruh. Ég sat í svona klukkutíma að tala við Luis og núna hangi ég bara á netinu og Maurah greyið að vaska upp eftir mig, dugnaðurinn í stelpunni. En ég held að það sé komið að svefn, er orðin frekar þreytt!

Reyni nú að vera duglegri, en þegar það er lítið að gera man ég ekkert eftir því að blogga, finnst það ekki nógu merkilegt! haha..

Kveðjur úr hitanum í frostið þarna heima!



Freydís Þóra :)

Monday, 15 October 2012

Cajamarca :)

Seinustu helgi skelli ég mér til Cajamarca með skiptinemunum hérna og Ivan og Diönu. Cajamarca er í ekki nema 200.000 manna borg og í 2600 m hæð, svo þetta var viss upplifun að fara þarna uppeftir. En ætli ég byrju nú bara ekki á byrjuninni :)

Á fimmtudaginn skelltum við okkur í 6 tíma rútuferð kl 11 um kvöldið til Cajamarca, og var auðvitað sofið alla leiðina, eða reynt að minnsta kosti. Þegar þangað var komið fór ég til Diönu, þar sem hún er búin að vera þarna að vinna í mánuð og býr hjá tvíburasystur mömmu. Þar fékk ég nú að sofa í svona 2 tíma í viðbót síðan var haldið af stað í skoðunarferð. Fyrsta ferð dagsins var bara labbað um borgina, eða smá hluta af henni og skoðað eitthvað um inka og hvar og hvernig þeir fóru með gull og einhvern dúdda sem var dæmdur til dauða og eitthvað þannig, náði nú ekki öllu saman. En í endan á túrnum fórum við upp á einhvert fjall í miðri borginni og útsýnið þar er bara geeðveikt!
Útsýnið, frá einu sjónarhorni
Á leiðinni niður aftur var skoðaður markaður og síðan hádegismatur og hvíld fram að næsta túr. 
Næst var farið eitthvert út fyrir bæinn og skoðað kúabú, eða framleiðslu frá mjólk, og einhverjar gamlar grafir líka og svo náttúrulega bara skoðað náttúruna og svona. Voða gaman en svolítið þreytandi. Eftir þessa ferð var bara borðað og farið heim að sofa!

Laugardagurinn fór síðan í 2 ferðir, fyrir og eftir hádegi. Vaknað var 8 og tekin sturta og morgunmatur og síðan lagt af stað í aðra ferð út fyrir bæinn eitthvert. Skoðuðum þar dýragarð einhverstaðar lengst uppí fjöllum og sá ég nú lama dýr í fyrsta sinn! loksins! hahaha.. En þar var líka fullt af dýrum, tígrar, ljón, björn, allskonar fuglar og margt margt fleira. Einnig skelltum við okkur á hestbak, en ómæ hestarnir voru algjörlega ekki vel tamdir, eiginlega bara ekkert tamdir, hlýddu engu þessi grey! En samt sem áður var það nokkuð gaman, sérstaklega fyrst þar sem Maurah hafði aldrei farið á hestbak áður, það var skrautlegt.
Skrautlegt lama, í perúskum stíl, svo er víst!

Geðveikur fugl!

Seinni partinn var farið að skoðað einhverja fossa og læki sem var alveg magnað. Það var mikið labbað, en svo algjörlega þess virði. 
Einn fossinn.

Um kvöldið var síðan planið að fara út að djamma, þar sem Ivan átti afmæli á fimmtudeginum fyrir, en þar sem enginn var í skapi til þess var bara djammað inná hótel herbergi í staðin. Það er allt sem þið fáið að vita þar sem við ákváðum að það sem skeði í Cajamarca varð eftir í Cajamarca! hahaha...
Síðan var vaknað snemma á sunnudagsmorgun til að fara að skoða einhvern stað þar sem fólk bjó og hvernig það skar jörðina til að koma vatni þangað sem það þurfti, það er enn í dag óleyst ráðgáta hvernig þeir gerðu það. Þetta var það hæðsta sem við fórum svo að anda þarna var svolítð erfitt, sérstaklega með þynnkunni. Hahahah.. Annars var þetta mjög mjög fallegt, og þarna býr líka fólk þar sem er ekkert rafmagn eða neitt og maður sér á fólkinu að það er fátækt og gerir allt sjálft og lifir held ég á ferðamönnum. T.d. ef við vorum nálægt byggð voru alltaf krakkar að betla pening, litlu greyin, en okkur var sagt að hundsa allt svona, því maður veit aldrei hvað eru þjófar eða eitthvað þannig. Svo maður varð bara að labba framhjá. 

Lítil fátæk stelpa sem við mættum.

Í ferðinni hittum við einnig einn skiptinema sem býr í Piura og var það nú frekar gaman. Hún var þarna með skólanum sínum. Eftir ferðina var borðað síðan lagst niður og ég steinsofnaði! Síðan fórum við á markaðina til að kaupa minjagripi og ég keypti mér nú bara 4 armbönd, gaf eitt og fékk eitt gefins. Núna er ég sko að safna armböndum fyrir staði, atburði og fólk svona í minningu um perú og byrjaði það þarna. Einnig fékk ég mér falleg armbönd með stjörnumerkinu mínu á! Um kvöldið var síðan borðaður kvöldmatur , tekið sig til og farið heim.
Dagurinn í dag er svo búinn að fara í nákvæmlega ekki neitt, jú ég þvoði þvottinn minn og fór í sturtu! Fór ekki í skólann þar sem við komum heim kl 5 í morgun og þá var maður frekar illa sofinn og svona. Svo er það bara skóli þessa viku og frí næstu að öllum líkindum þar sem það eru próf og við erum að taka þátt í þeim þar sem allt er á spænsku og við höfum ekki einu sinni enþá farið í alla tímana okkar.

Jáá og ég vil biðjast afsökunar á lélegri íslensku, þar sem ég er farin að hugsa algjörlega á ensku með smá spænsku. Það er ekki einu sinni fyndið hvað ég hugsa ekki lengur á íslensku, þegar ég tel, eða er að hugsa um eitthvað er það yfirleitt á ensku.

Annars hef ég nú ekkert meira að segja í bili, vildi nú bara segja ykkur frá þessari mögnuðu ferð :)

Kossar og knús frá Perú

Freydís Þóra!

p.s. komnar nýjar myndir á dropboxið frá ferðinni :) 

Monday, 1 October 2012

Skólinn.

Mér fannst nú orðið tímabært að fara að "update'a" ykkur um mitt líf, eins og má orða á "góðri" íslensku. Ekkert of mikið hefur nú verið gert þrátt fyrir það en ætli maður segi ykkur ekki aðeins frá skólalífinu og svona.

Fyrir rúmum 2 vikum byrjuðum við loksins í skólanum. Fyrstu dagana var bara að kynnast fólkinu, eða þau meira okkur þar sem ég hef ekki grænann grun um hvað helmingurinn af þeim heitir. Finna stofurnar, koma of seint í tíma ( ekki okkur að kenna, stundaskráin okkar var vitlaus). Að sitja á sama stað í sama tíma í 5 klukkustundir er nú samt ekki gaman skal ég segja ykkur, sérstaklega þegar maður skilur nákvæmlega ekki neitt. Svo fyrsta vikan var bara þannig að maður gerði ekkert.
Síðan kom helgin. Þá fór ég út með Luis (ur bekknum),  Hönnuh (einum skiptinemanum), Isabel (systir) og kærasta hennar. Við fórum á pöb og svo á diskó en ég þurfti að vera komin heim snemma svo það var lítið dansað. Laugardagskvöld var ég með Hönnuh og síðan for ég með Diönu, systir, í eitthvað afmælispartý á 8undu hæð í blokk, og íbúðin samt á 2 hæðum. Partýið var geðveikt, það var plötusnuður og ljós og læti, og svo ótrúlega góð kaka. Daginn eftir þurfti samt Diana að fara, vegna vinnu, til Cajamarca og verður þar í 3 - 4 vikur! Mér finnst það nú ekkert sniðugt að hafa hana svona í burtu. Já og ég fékk held ég naggrís í matinn og ef svo er þá eru naggrísir eitt það besta sem ég hef smakkað, það get ég svo svarið!
Skólavika nr. 2. Kennarar byrjuðu að láta okkur læra eitthvað á spænsku, því ein af okkur skiptinemunum talar spænsku, en hún þolir ekki að þurfa að þýða fyrir okkur svo það er eiginlega jafn tilgagnslaust og að hafa ekkert að gera. En við vorum þrátt fyrir það sett í hópa og látin vinna verkefni og svona, gekk ekkert alltof vel og þurftum aldrei að skila neinu inn.
Já, ég ætti kannski að minnast á blessuðu borðin/stólana í skólanum hérna. Þetta er semsagt bara einn og sami hluturinn, svona eins og í bíómyndunum. Nema hvað að borðið er svo lítið að það kemst ein bók og pennaveski fyrir þar. Ég veit fyrir víst að þetta fyrirkomulag myndi aldrei ganga upp í MA, svo mikið er víst. Þið fáið kannski að sjá myndir af því, ef ég man einhverntímann eftir því að taka myndir af því.
Aftur að skólavikunni. Á miðvikudeginum fórum við með skólanum til Laqiupampa. Það var fínasta ferð, stoppuðum einhverstaðar á leiðinni og löbbuðum upp hálft fjallið til að fara á svo fallegan stað að synda. Váá þetta var svo fallegt þarna, hefði helst bara vilja flytja þangað! Myndir koma inn á dropboxið í dag vonandi. Eftir það fórum við svo til Laquipampa og ég veit eiginlega ekki enþá hvað við vorum að gera þar! Við borðuðum, löbbuðum upp einhvert, þar var eitthvað sagt og síðan löbbuðum við aftur niður og fórum heim. En þessi staður var ekkert eitthvað sérstakur, bara bær uppí fjalli, sem er ekkert það óalgengt hérna svo ég veit ekki alveg hvað var málið með það. En eftir daginn var ég alveg búin á því og daginn eftir var bara hálf sofið í tíma og allan daginn nánast..
Föstudagskvöldið fór ég síðan út með Luis bara að borða og rölta um bæinn og svona. Laugardaginn fór ég út um hádegi, kom heim til að skipta um föt og fór síðan út með Maurah, Ivan og Walter á pöb. Þegar við tókum taxa á leiðinni heim til mín rakst annar taxi utan í okkar taxa og stakk svo bara af. Þannig við fórum að elta hann og svo fundum við löggu og hún elti hann og við líka. Hahaha, þetta var eitthvað nýtt allavegana, taxaeltingaleikur. En svo þurfti ég að fara heim. Á sunnudagsmorguninn mættu síðan allt í einu hópur úr bekknum mínum heim til mín til að taka mig með sér á safn fyrir eitthvað verkefni, svo ég væri nú örugglega með á myndunum.  Þannig ég klæddi mig og fór með þeim. Eftir það fórum við heim til einhvers þeirra og sátum bara og "spjölluðum", ekki mikið sem kom uppúr mér þar sem þau tala enga ensku og spænskan mín eru bara eitt og eitt orð. En þetta var samt sem áður mjög gaman. Síðan fór ég heim, fór í sturtu og fór síðan í mat til Maurah, þar sem hún gerði yndislegt spagetti bolognes! Það var guðdómlegt, ég át hinsvegar aðeins of mikið kannski!
Svo er bara önnur skólavika að byrja, vonandi sú seinasta í þessum ferli þar sem ég ætla að skipta yfir á verkfræði þar sem ég get lært stærðfræði og efnafræði. Það er allavegana eitthvað sem ég get, annað en að sitja og ekki skilja neitt og ekki einu sinni hafa áhuga á því að skilja neitt. En vonandi fáum við að skipta og þá verður þetta fínt.

En jáá fleiri myndir koma vonandi bráðlega inn á dropboxið .. Reyni í dag annars á næstu dögum ..

En ætla nú að segja þetta gott í bili, nenni ekki einu sinni að setja inn myndir í þetta skipti þar sem mig langar bara að fara að leggja mig!

Kossar og knús til allra heima og njótiði veðursins sérstaklega!

Ciao!