Friday, 2 November 2012

Skóli og frí... Lítið að gera

Starbuks, okkar bestu vinur hérna!
Já afsakið letina í mér hérna á þessu bloggi en það hefur bara fátt verið að gerast svo ég hef skrifað lítið. Síðan ég kom frá Cajamarca hef ég bara verið í skólanum og verið með skiptinemunum og Luis.
Fyrsta helgin eftir að ég kom heim fór ekki í mikið, nennti ekki í partý með skiptinemunum á föstudeginum því mig langaði bara lítið að fara að drekka og eitthvað svoleiðis svo ég ákvað að fara bara út í göngutúr með Luis. Skiptinemarnir fannst það eitthvað skrítið og héldu nú að það væri nú eitthvað að mér, en var bara löt. Svo endaði helgin bara í leti!
Næstu 2 vikur fóru bara í skólann og frí og hanga með skiptinemunum. Held ég hafi lítið spennandi gert.
Seinasta vika fór svo öll í letilíf! Allir krakkarnir í skólanum voru í prófum, miðannarprófum, og við þurftum ekki að taka þau. Við tókum nú samt eitt próf, í ensku, og það var nú bara gefið próf. Við nenntum ekki einu sinni að bíða eftir einkuninni, því okkur var svo sama, hahaha...
Seinastu helgi kom svo Diana heim og þá ákváðum við skiptinemarnir að koma saman og búa til pizzu.

 Án efa sú versta sem ég hef smakkað, því ég kann ekkert á hráefnin hérna svo ég setti bara eitthvað á pizzuna, var ekkert gott. Þannig það endaði með því að ég borðaði bara eina sneið! haha.. Síðan fór ég bara heim snemma, var þreytt og Diana líka. Daginn eftir fór Diana og dagurinn fór í letilíf.
Síðan hefur þessi vika farið smá í skóla og smá í leti líf því það var frí á mánudaginn, miðvikudaginn og fimmtudaginn. Samt ekki á mánudaginn en okkur var sagt það svo við fórum ekki í skólann, á miðvikudaginn því kennarinn var ekki og á fimmtudaginn því það er einhver dagur dauða fólksins eða eitthvað álíka. Í gær flutti síðan Maurah, annar belgíski skiptineminn, inn til mín því það hafa verið vandamál í fjölskyldunni hennar og þetta verður bara æðislegt að hafa hana hérna :)
Luis að elda :)
Í dag var síðan bara gaman í skólanum, ég og Maurah hlógum mikið í tíma, bara að hvor annarri samt. Síðan eftir skóla fórum við heim með einni bekkjarsystur okkar, Andreu, og Luis kom með og eldaði handa okkur ótrúlega góðann mat. Sagði við hann að ég yrði að taka hann með heim bara til að láta hann elda ofaní mig þegar ég hef ekki mömmu! En honum leyst ekkert á það, því honum langaði að hitta mömmu, hahaha.. Já síðan vorum við bara heima hjá Andreu til hálf 10 í kvöld og við forum heim til okkar, mín og Mauruh. Ég sat í svona klukkutíma að tala við Luis og núna hangi ég bara á netinu og Maurah greyið að vaska upp eftir mig, dugnaðurinn í stelpunni. En ég held að það sé komið að svefn, er orðin frekar þreytt!

Reyni nú að vera duglegri, en þegar það er lítið að gera man ég ekkert eftir því að blogga, finnst það ekki nógu merkilegt! haha..

Kveðjur úr hitanum í frostið þarna heima!



Freydís Þóra :)

Monday, 15 October 2012

Cajamarca :)

Seinustu helgi skelli ég mér til Cajamarca með skiptinemunum hérna og Ivan og Diönu. Cajamarca er í ekki nema 200.000 manna borg og í 2600 m hæð, svo þetta var viss upplifun að fara þarna uppeftir. En ætli ég byrju nú bara ekki á byrjuninni :)

Á fimmtudaginn skelltum við okkur í 6 tíma rútuferð kl 11 um kvöldið til Cajamarca, og var auðvitað sofið alla leiðina, eða reynt að minnsta kosti. Þegar þangað var komið fór ég til Diönu, þar sem hún er búin að vera þarna að vinna í mánuð og býr hjá tvíburasystur mömmu. Þar fékk ég nú að sofa í svona 2 tíma í viðbót síðan var haldið af stað í skoðunarferð. Fyrsta ferð dagsins var bara labbað um borgina, eða smá hluta af henni og skoðað eitthvað um inka og hvar og hvernig þeir fóru með gull og einhvern dúdda sem var dæmdur til dauða og eitthvað þannig, náði nú ekki öllu saman. En í endan á túrnum fórum við upp á einhvert fjall í miðri borginni og útsýnið þar er bara geeðveikt!
Útsýnið, frá einu sjónarhorni
Á leiðinni niður aftur var skoðaður markaður og síðan hádegismatur og hvíld fram að næsta túr. 
Næst var farið eitthvert út fyrir bæinn og skoðað kúabú, eða framleiðslu frá mjólk, og einhverjar gamlar grafir líka og svo náttúrulega bara skoðað náttúruna og svona. Voða gaman en svolítið þreytandi. Eftir þessa ferð var bara borðað og farið heim að sofa!

Laugardagurinn fór síðan í 2 ferðir, fyrir og eftir hádegi. Vaknað var 8 og tekin sturta og morgunmatur og síðan lagt af stað í aðra ferð út fyrir bæinn eitthvert. Skoðuðum þar dýragarð einhverstaðar lengst uppí fjöllum og sá ég nú lama dýr í fyrsta sinn! loksins! hahaha.. En þar var líka fullt af dýrum, tígrar, ljón, björn, allskonar fuglar og margt margt fleira. Einnig skelltum við okkur á hestbak, en ómæ hestarnir voru algjörlega ekki vel tamdir, eiginlega bara ekkert tamdir, hlýddu engu þessi grey! En samt sem áður var það nokkuð gaman, sérstaklega fyrst þar sem Maurah hafði aldrei farið á hestbak áður, það var skrautlegt.
Skrautlegt lama, í perúskum stíl, svo er víst!

Geðveikur fugl!

Seinni partinn var farið að skoðað einhverja fossa og læki sem var alveg magnað. Það var mikið labbað, en svo algjörlega þess virði. 
Einn fossinn.

Um kvöldið var síðan planið að fara út að djamma, þar sem Ivan átti afmæli á fimmtudeginum fyrir, en þar sem enginn var í skapi til þess var bara djammað inná hótel herbergi í staðin. Það er allt sem þið fáið að vita þar sem við ákváðum að það sem skeði í Cajamarca varð eftir í Cajamarca! hahaha...
Síðan var vaknað snemma á sunnudagsmorgun til að fara að skoða einhvern stað þar sem fólk bjó og hvernig það skar jörðina til að koma vatni þangað sem það þurfti, það er enn í dag óleyst ráðgáta hvernig þeir gerðu það. Þetta var það hæðsta sem við fórum svo að anda þarna var svolítð erfitt, sérstaklega með þynnkunni. Hahahah.. Annars var þetta mjög mjög fallegt, og þarna býr líka fólk þar sem er ekkert rafmagn eða neitt og maður sér á fólkinu að það er fátækt og gerir allt sjálft og lifir held ég á ferðamönnum. T.d. ef við vorum nálægt byggð voru alltaf krakkar að betla pening, litlu greyin, en okkur var sagt að hundsa allt svona, því maður veit aldrei hvað eru þjófar eða eitthvað þannig. Svo maður varð bara að labba framhjá. 

Lítil fátæk stelpa sem við mættum.

Í ferðinni hittum við einnig einn skiptinema sem býr í Piura og var það nú frekar gaman. Hún var þarna með skólanum sínum. Eftir ferðina var borðað síðan lagst niður og ég steinsofnaði! Síðan fórum við á markaðina til að kaupa minjagripi og ég keypti mér nú bara 4 armbönd, gaf eitt og fékk eitt gefins. Núna er ég sko að safna armböndum fyrir staði, atburði og fólk svona í minningu um perú og byrjaði það þarna. Einnig fékk ég mér falleg armbönd með stjörnumerkinu mínu á! Um kvöldið var síðan borðaður kvöldmatur , tekið sig til og farið heim.
Dagurinn í dag er svo búinn að fara í nákvæmlega ekki neitt, jú ég þvoði þvottinn minn og fór í sturtu! Fór ekki í skólann þar sem við komum heim kl 5 í morgun og þá var maður frekar illa sofinn og svona. Svo er það bara skóli þessa viku og frí næstu að öllum líkindum þar sem það eru próf og við erum að taka þátt í þeim þar sem allt er á spænsku og við höfum ekki einu sinni enþá farið í alla tímana okkar.

Jáá og ég vil biðjast afsökunar á lélegri íslensku, þar sem ég er farin að hugsa algjörlega á ensku með smá spænsku. Það er ekki einu sinni fyndið hvað ég hugsa ekki lengur á íslensku, þegar ég tel, eða er að hugsa um eitthvað er það yfirleitt á ensku.

Annars hef ég nú ekkert meira að segja í bili, vildi nú bara segja ykkur frá þessari mögnuðu ferð :)

Kossar og knús frá Perú

Freydís Þóra!

p.s. komnar nýjar myndir á dropboxið frá ferðinni :) 

Monday, 1 October 2012

Skólinn.

Mér fannst nú orðið tímabært að fara að "update'a" ykkur um mitt líf, eins og má orða á "góðri" íslensku. Ekkert of mikið hefur nú verið gert þrátt fyrir það en ætli maður segi ykkur ekki aðeins frá skólalífinu og svona.

Fyrir rúmum 2 vikum byrjuðum við loksins í skólanum. Fyrstu dagana var bara að kynnast fólkinu, eða þau meira okkur þar sem ég hef ekki grænann grun um hvað helmingurinn af þeim heitir. Finna stofurnar, koma of seint í tíma ( ekki okkur að kenna, stundaskráin okkar var vitlaus). Að sitja á sama stað í sama tíma í 5 klukkustundir er nú samt ekki gaman skal ég segja ykkur, sérstaklega þegar maður skilur nákvæmlega ekki neitt. Svo fyrsta vikan var bara þannig að maður gerði ekkert.
Síðan kom helgin. Þá fór ég út með Luis (ur bekknum),  Hönnuh (einum skiptinemanum), Isabel (systir) og kærasta hennar. Við fórum á pöb og svo á diskó en ég þurfti að vera komin heim snemma svo það var lítið dansað. Laugardagskvöld var ég með Hönnuh og síðan for ég með Diönu, systir, í eitthvað afmælispartý á 8undu hæð í blokk, og íbúðin samt á 2 hæðum. Partýið var geðveikt, það var plötusnuður og ljós og læti, og svo ótrúlega góð kaka. Daginn eftir þurfti samt Diana að fara, vegna vinnu, til Cajamarca og verður þar í 3 - 4 vikur! Mér finnst það nú ekkert sniðugt að hafa hana svona í burtu. Já og ég fékk held ég naggrís í matinn og ef svo er þá eru naggrísir eitt það besta sem ég hef smakkað, það get ég svo svarið!
Skólavika nr. 2. Kennarar byrjuðu að láta okkur læra eitthvað á spænsku, því ein af okkur skiptinemunum talar spænsku, en hún þolir ekki að þurfa að þýða fyrir okkur svo það er eiginlega jafn tilgagnslaust og að hafa ekkert að gera. En við vorum þrátt fyrir það sett í hópa og látin vinna verkefni og svona, gekk ekkert alltof vel og þurftum aldrei að skila neinu inn.
Já, ég ætti kannski að minnast á blessuðu borðin/stólana í skólanum hérna. Þetta er semsagt bara einn og sami hluturinn, svona eins og í bíómyndunum. Nema hvað að borðið er svo lítið að það kemst ein bók og pennaveski fyrir þar. Ég veit fyrir víst að þetta fyrirkomulag myndi aldrei ganga upp í MA, svo mikið er víst. Þið fáið kannski að sjá myndir af því, ef ég man einhverntímann eftir því að taka myndir af því.
Aftur að skólavikunni. Á miðvikudeginum fórum við með skólanum til Laqiupampa. Það var fínasta ferð, stoppuðum einhverstaðar á leiðinni og löbbuðum upp hálft fjallið til að fara á svo fallegan stað að synda. Váá þetta var svo fallegt þarna, hefði helst bara vilja flytja þangað! Myndir koma inn á dropboxið í dag vonandi. Eftir það fórum við svo til Laquipampa og ég veit eiginlega ekki enþá hvað við vorum að gera þar! Við borðuðum, löbbuðum upp einhvert, þar var eitthvað sagt og síðan löbbuðum við aftur niður og fórum heim. En þessi staður var ekkert eitthvað sérstakur, bara bær uppí fjalli, sem er ekkert það óalgengt hérna svo ég veit ekki alveg hvað var málið með það. En eftir daginn var ég alveg búin á því og daginn eftir var bara hálf sofið í tíma og allan daginn nánast..
Föstudagskvöldið fór ég síðan út með Luis bara að borða og rölta um bæinn og svona. Laugardaginn fór ég út um hádegi, kom heim til að skipta um föt og fór síðan út með Maurah, Ivan og Walter á pöb. Þegar við tókum taxa á leiðinni heim til mín rakst annar taxi utan í okkar taxa og stakk svo bara af. Þannig við fórum að elta hann og svo fundum við löggu og hún elti hann og við líka. Hahaha, þetta var eitthvað nýtt allavegana, taxaeltingaleikur. En svo þurfti ég að fara heim. Á sunnudagsmorguninn mættu síðan allt í einu hópur úr bekknum mínum heim til mín til að taka mig með sér á safn fyrir eitthvað verkefni, svo ég væri nú örugglega með á myndunum.  Þannig ég klæddi mig og fór með þeim. Eftir það fórum við heim til einhvers þeirra og sátum bara og "spjölluðum", ekki mikið sem kom uppúr mér þar sem þau tala enga ensku og spænskan mín eru bara eitt og eitt orð. En þetta var samt sem áður mjög gaman. Síðan fór ég heim, fór í sturtu og fór síðan í mat til Maurah, þar sem hún gerði yndislegt spagetti bolognes! Það var guðdómlegt, ég át hinsvegar aðeins of mikið kannski!
Svo er bara önnur skólavika að byrja, vonandi sú seinasta í þessum ferli þar sem ég ætla að skipta yfir á verkfræði þar sem ég get lært stærðfræði og efnafræði. Það er allavegana eitthvað sem ég get, annað en að sitja og ekki skilja neitt og ekki einu sinni hafa áhuga á því að skilja neitt. En vonandi fáum við að skipta og þá verður þetta fínt.

En jáá fleiri myndir koma vonandi bráðlega inn á dropboxið .. Reyni í dag annars á næstu dögum ..

En ætla nú að segja þetta gott í bili, nenni ekki einu sinni að setja inn myndir í þetta skipti þar sem mig langar bara að fara að leggja mig!

Kossar og knús til allra heima og njótiði veðursins sérstaklega!

Ciao!

Sunday, 16 September 2012

Inkar, pýramídar og kolkrabbar...

Vikan sem var að líða hefur farið í lítið sem ekkert. Skoðuðum skólann, fórum á afs kynningu um bæinn og hvað væri "safe" og ekki og allt svona, og síðan lærðum við að komast í og frá skólanum.
Svo á föstudaginn tók Diana mig með sér út á lítinn bar hérna þar sem við vorum til 4 að hlusta á lifandi tónlist, sem í rauninni allir gátu sungið með. Ég ákvað að vera ekkert að syngja með í þetta skipti, sérstaklega þar sem ég kann ekkert spænsku lögin. Eftir að hljómsveitin var hætt að spila fórum við bara að spjalla við fólkið á staðnum sem var mjög gaman, sérstaklega þar sem það voru allavegana einhverjir sem töluðu ensku.
Daginn eftir þurftum við síðan að vakna hressar klukkan 8 því ferðinni var heitið á eitthvert inka safn í hópferð með skiptinemunum og einhverju fátæku fólki, þetta var einhverskonar samfélagsþjónustuferð held ég. Þegar við komum að strætónum/rútunni sem átti að fara með okkur var enginn kominn svo við fengum sæti. Málið var nefnilega að annar bílinn bilaði svo það var bara einn fyrir allt fólkið, og ferðin tók ekki nema klukkutíma á safnið sjálft! Svo það var staðið og vel troðið. Þegar komið var á safnið fór fólk að glápa á okkur, og ekkert lítið. Þá byrjuðu myndatökurnar, sem hættu ekki alla ferðina. Held að hver fjölskylda eigi allavegana svona 20 myndir af okkur skiptinemunum. Safnið sjálft var fínt, bara mjög lítið í því en maður fræddist aðeins um inkana, og það að þeir gerðu pýramída, ég hafði ekki hugmynd um það. Þessir pýramídar eru samt allt allt allt öðruvísi en þessir egypsku. Allavegana eftir safnið var farið inn i einhvern skóg og við fengum loksins mat, klukkan að verða 2. Maturinn var auðvitað hrísgrjón og kjúklingur, ekki að spurja að því. Svo fórum við að skoða eitthvað landsvæði sem er vel skógi vaxið og grasi og svona, eftir rigningartímabil, sem hefur ekki verið í mörg ár svo þetta var allt frekar orðið dautt og bara sandur allstaðar. En við fengum að sjá smá af þessum pýramídum, held ég, en samt bara að utan. Svo var eiginlega bara beðið því einhver kall var að lýsa þessu öllu fyrir einhverju fólki og á spænsku svo við skildum ekki orð, og orðin þreytt því á milli staða fengum við ekki sæti svo það var bara staðið. Þegar við fórum svo heim aftur fengum við engin sæti, svo við sátum bara á gólfinu, því ekki nenntum við að standa í allavegana einn tíma. Ég sofnaði meira að segja þarna á gólfinu. Þegar heim var komið var borðað og lagst upp í rúm, ég hafði ekki orku í neitt meira.
Dagurinn í dag hefur bara farið í að liggja í leti og leika sér með hundinum og hvolpunum. Já og ég borðaði kolkrabba, jáá barnakolkrabba svona pínu litla, en þetta er ótrúlega gott.

Á morgun byrjar svo loksins skólinn! Ég get varla beðið. Þarf örugglega að vakna um 6 þar sem hann byrjar klukkan hálf 8 en mér er alveg sama, ég fæ loksins að gera eitthvað. Eftir skóla ætlum við stelpurnar, skiptinemarnir, að fara saman í mollið og fá okkur að borða og gera eitthvað saman. Vonandi bara að maður kemst síðan heim eftir það með taxa, þetta verður skrautlegt.

Kolkrabbinn góði. 

Leiðin heim úr ferðinni, allir voða ferskir eitthvað.

Ég ákvað að taka sundsprett í ánni.

Perúsku pýramídarnir, eða það sem eftir er af þeim.

Sma full rúta, og hárið á mér went wild!

Já það er frekar auðvelt að eignast vini hérna, og af öllum aldri.

Svona fundust víst inkarnir grafnir, og allir afhausaðir og þessar grímur settar í stað andlita þeirra


Ég held þetta sé nóg í bili. Blogga næst þegar eitthvað skemmtilegt og spennandi gerist.
Þangað til, njótiði lífsins.

Adios!

Tuesday, 11 September 2012

Chiclayo!

Tha er madur komin til fjolskyldunnar og allt litur bara vel ut. Ibudin er frekar litil, en alveg nogu stor. Deili herbergi med elstu stelpunni, en hun er bara yndisleg svo thad er bara i fina lagi. Sidan hofum vid heitt vatn og internet, svo thad gerist varla betra herna! En thad er bar i husinu a moti sem er opinn oll kvold, svo eg fae ad sofna vid partytonlist oll kvold, thad er eitthvad sem madur venst voanndi samt. Folk herna hefur um 90 sjonvarpstodvar, thetta er klikkun sko, en svo margt sem er thytt a spaensku ad eg skil ekki mikid entha. 
Fjolskyldan er bara yndisleg vid mig. Thau eru alltaf ad kenna mer ny og ny ord eda frasa, thott eg gleymi miklu strax thvi eg er ekki alltaf med stilabokina mina a mer. Sidan eru thau mikid ad leyfa mer ad smakka matinn, sem er eiginlea alltaf bara godur! Sumt er reyndar of saltad fyrir minn smekk, en aetli madur venjust thvi svosem ekki, og thad er sykur i of miklu herna! Krakkar fitna ekki bara utaf thvi ad maturinn er godur, thad er lika alltaf gefid manni svo mikid og thetta er ekkert thad hollasta i heimi. En thad eru alltaf til avextir og eg borda orugglega minnst 5 a dag. 

Fyrsta daginn herna for Diana med mer ut ad syna mer midbaeinn, sem er bara herna a naesta gotuhorni, erum svo nalaegt. Thad var mjog fint, en thetta er mjog ruglandi hverfin herna. Vaeri ekkert sma audvelt ad villast, en thar sem gatan min er svo long og alveg vid midbaeinn vaeri mjog audvelt ad rata aftur heim.
A laugardagskvoldid for eg svo i brudkaup hja bestu vinkonu Dionu og thad var mjog odruvisi! Thetta var svona eins og klippt utur fancy bandarisku brudkaupi, en svo kom folk a stultum og i strumpa og andarbuningum til ad hressa adeins uppa folkid, thetta var thvilik upplifun!
A sunnudeginum var svo bara legid i leti og farid i bio, og thad er i mollinu sem er nanast allt utandyra sem er soldid skritid finnst mer en samt svo snidugt. Thegar vid vorum ad bida eftir ad myndin byrjadi vorum vid eh ad rolta um mollid og saum gotulistamann sem malar/spreyar myndir og thad er ekkert djok hvad thetta er flott! aetla klarlega ad kaupa mer eina adur en eg fer aftur til islands!
I gaer, manudag, for dagurinn i ekki neitt, var soldid mikid ein heima thvi folk er i skolanum og vinnu, en hushjalpin var heima, en hun talar bara spaensku, svo samskipti okkar eru ekki mikil, en hun er alltaf ad reyna ad kenna mer, sem er dasamlegt!
Dagurinn i dag for svo ad fara i skolann og velja ahugasvid. Vid stelpurnar voldum okkur allar tourism, eda turistasvid eda eh alika, sem saman stendur af thvi ad laera um landid, laera ad tala fyrir framan folk, laera eitthvad svona hotel management, veit ekki alveg islenska ordid, og hljomar thetta bara spennandi. Svo for Ivan, trunadarmadurinn okkar, med okkur a rolt um baeinn og a McDonalds thvi hinar stelpurnar sakna thess svo. Tha sagdi Ivan mer fra eh sirkusprogrammi sem er i haskolanum sem eg aelta svo klarlega i og get ekki bedid eftir ad byrja i skolanum, sem verdur ekki fyrr en a manudaginn samt thvi vid eigum eftir ad laera ad koma okkur i skolann og svona.

Annars hef eg ekkert meira ad segja i bili held eg.
Nema thad ad thad er vetur hja mer, ekki nema 24 stiga hiti. 
Njotidi!

Kvedja fra Chiclayo!
Freydis :D

Thursday, 6 September 2012

Loksins loksins!

Jæja, þá er maður lentur í Lima og erum búin að vera hérna í 1 dag á arrival campinu, eða komubúðunum. 

Þegar ég skirfaði seinast var ég ekki einu sinni komin með fjölskyldu, svo kannski að byrja á því að segja frá því aðeins. Ég mun semsagt búa í borg sem heitir Chiclayo og er ekki nema 700 þúsund manna borg. Fjölskyldan mín samanstendur af foreldrum sem eru bæði verkfræðingar, sem ég man ekki alveg hvað eru gömul, og 3 eldri systkinum. Elsta stelpan er 28 ára og er verkfræðingur líka, hún býr ekki á heimilinu en býr í Chiclayo. Ég hef talað mikið við hana og hún virðist mjög fín, einnig verð ég í gamla herberginu hennar á heimilinu. Svo er það einn bróðir, sem er 27 ára gamall, hann er lögfræðingur en býr ekki í Chiclayo og kemur einungis heim á 5 vikna fresti, skilst mér. Síðan er það önnur stelpa, hún er 20 ára og er enn í háskóla. Hef ekkert talað við hana en er að vonast til þess að ég fari í sama skóla og hún, en ég veit ekki enþá neitt um það svosem. 
Þá kannski að segja smá frá ferðalaginu hingað.
Við krakkarnir, ég, Gylfi, Ásgerður og Sigríður, hittumst á flugvellinum um 8, tókum flug, sem ég hélt að ætlaði aldrei að enda, til JFK, New York. Þar komum við okkur út, þar sem við vorum á terminal 7 en flugið okkar til Lima fór frá terminal 8, og komum okkur yfir á terminal 8. Þar sem það voru 10 tímar í flugið okkar var ekki hægt að innrita sig strax svo við fórum á terminal 4 til að fá okkur eitthvað að borða því það var eini staðurinn þar sem eitthvað var hægt að borða og við vorum örugglega þar í svona 6-7 tíma. Síðan innrituðum við okkur og biðum lengur, svo loksins kom flugið og ég get svo svarið það, ég var sofnuð nánast áður en við fórum í loftið! Ég svaf ágætlega alla leið, vaknaði smá þar sem það er ekkert ofur þæginlegt að sofa í flugvél, en annars svaf ég mest megnis. Síðan lentum við og ekkert mál að fara í gegnum tollinn og innflytjendaeftirlitið og svona. Þegar við komum út kom til okkar ein krúttlegasta kona sem ég veit um. Hún fór með okkur í rútuna, og þar hittum við einmitt frakka, dani og svía sem höfðu komið á svipuðum tíma. Þaðan fórum við í skólann sem við gistum í. Allur fyrsti dagurinn fór í nánast ekki neitt því það voru ekki allir komnir, og engir sjálfboðaliðar komnir. En við fórum bara á röltið um hverfið og í búðina og kynntumst krökkunum, sem var svosem fínt líka. Um kvöldið kom síðan nánast restin, en við vorum svo þreytt að við fórum bara snemma að sofa. Svo í dag er búið að vera fínt, fullt af krökkum og loksins eitthvað að gera og allir alltaf geðveikt yndælir. Núna er bara verið að bíða eftir matnum og ég held að það sé síðan eitthvað að gerast í kvöld, þótt ég sé ekki viss.
Annars er Perú allt allt allt allt öðruvísi en ég hélt. Mér leið í gær, þegar við fórum á svona markað, að ég væri í aladín. Húsin eru öll frekar þétt saman og allskonar á litin og það er geðveikt töff. En umferðin hérna er skrítin, það er ekkert alltaf virt ljós eða umferðareglur og bílar eiga allan rétt. Það þarf maður víst að venjast! Svo erum við greinilega mjög framandi hérna, allir stara á okkur.

Ég held ég hafi þetta ekki mikið lengur núna. Myndir koma kannski bráðum inná dropboxið. Ef þið viljið aðgang að því megið þið skilja eftir emailið ykkar í commenti og ég deili því á ykkur :)

Kveðja frá Perú

Freydís Þóra !

Sunday, 22 July 2012

Skiptinám :)

Sæl verið þið :)
Ég heiti Freydís Þóra, er átján ára og kem frá Stöðvarfirði. Ég ætla hérna að blogga, eða reyna að blogga, um ferð mína sem skiptinemi til Perú.
Já ég er semsagt að fara sem skiptinemi til Perú og fer núna í september og kem aftur heim í júlí á næsta ári. Mig hefur lengi langað að fara sem skiptinemi en var alltaf svo heimakær og vildi helst aldrei fara frá Íslandi, það er sko best hérna! Svo það varð eiginlega aldrei neitt úr málunum. Síðan allt í einu ákvað ég bara að skella mér, og tók ákvörðunina algjörlega á seinustu stundu. Ég rétt slapp að sækja um skiptinám og var þá bara Perú eða Paragvæ í boði og leist mér betur á Perú. Ég ætlaði alltaf að fara til suður-ameriku hvort eð er svo þetta var bara fínt að fá að fara til Perú.
Já, hef fátt annað að segja í bili. Ég skrifa nú örugglega eitthvað næst bara þegar kemur að brottför eða þegar ég er komin út. Fer eftir því hversu dugleg ég verð með þetta blogg!

Jæja, bæjó :)