Seinustu helgi skelli ég mér til Cajamarca með skiptinemunum hérna og Ivan og Diönu. Cajamarca er í ekki nema 200.000 manna borg og í 2600 m hæð, svo þetta var viss upplifun að fara þarna uppeftir. En ætli ég byrju nú bara ekki á byrjuninni :)
Á fimmtudaginn skelltum við okkur í 6 tíma rútuferð kl 11 um kvöldið til Cajamarca, og var auðvitað sofið alla leiðina, eða reynt að minnsta kosti. Þegar þangað var komið fór ég til Diönu, þar sem hún er búin að vera þarna að vinna í mánuð og býr hjá tvíburasystur mömmu. Þar fékk ég nú að sofa í svona 2 tíma í viðbót síðan var haldið af stað í skoðunarferð. Fyrsta ferð dagsins var bara labbað um borgina, eða smá hluta af henni og skoðað eitthvað um inka og hvar og hvernig þeir fóru með gull og einhvern dúdda sem var dæmdur til dauða og eitthvað þannig, náði nú ekki öllu saman. En í endan á túrnum fórum við upp á einhvert fjall í miðri borginni og útsýnið þar er bara geeðveikt!
Á fimmtudaginn skelltum við okkur í 6 tíma rútuferð kl 11 um kvöldið til Cajamarca, og var auðvitað sofið alla leiðina, eða reynt að minnsta kosti. Þegar þangað var komið fór ég til Diönu, þar sem hún er búin að vera þarna að vinna í mánuð og býr hjá tvíburasystur mömmu. Þar fékk ég nú að sofa í svona 2 tíma í viðbót síðan var haldið af stað í skoðunarferð. Fyrsta ferð dagsins var bara labbað um borgina, eða smá hluta af henni og skoðað eitthvað um inka og hvar og hvernig þeir fóru með gull og einhvern dúdda sem var dæmdur til dauða og eitthvað þannig, náði nú ekki öllu saman. En í endan á túrnum fórum við upp á einhvert fjall í miðri borginni og útsýnið þar er bara geeðveikt!
Útsýnið, frá einu sjónarhorni
Á leiðinni niður aftur var skoðaður markaður og síðan hádegismatur og hvíld fram að næsta túr.
Næst var farið eitthvert út fyrir bæinn og skoðað kúabú, eða framleiðslu frá mjólk, og einhverjar gamlar grafir líka og svo náttúrulega bara skoðað náttúruna og svona. Voða gaman en svolítið þreytandi. Eftir þessa ferð var bara borðað og farið heim að sofa!
Laugardagurinn fór síðan í 2 ferðir, fyrir og eftir hádegi. Vaknað var 8 og tekin sturta og morgunmatur og síðan lagt af stað í aðra ferð út fyrir bæinn eitthvert. Skoðuðum þar dýragarð einhverstaðar lengst uppí fjöllum og sá ég nú lama dýr í fyrsta sinn! loksins! hahaha.. En þar var líka fullt af dýrum, tígrar, ljón, björn, allskonar fuglar og margt margt fleira. Einnig skelltum við okkur á hestbak, en ómæ hestarnir voru algjörlega ekki vel tamdir, eiginlega bara ekkert tamdir, hlýddu engu þessi grey! En samt sem áður var það nokkuð gaman, sérstaklega fyrst þar sem Maurah hafði aldrei farið á hestbak áður, það var skrautlegt.
Skrautlegt lama, í perúskum stíl, svo er víst!
Geðveikur fugl!
Seinni partinn var farið að skoðað einhverja fossa og læki sem var alveg magnað. Það var mikið labbað, en svo algjörlega þess virði.
Einn fossinn.
Um kvöldið var síðan planið að fara út að djamma, þar sem Ivan átti afmæli á fimmtudeginum fyrir, en þar sem enginn var í skapi til þess var bara djammað inná hótel herbergi í staðin. Það er allt sem þið fáið að vita þar sem við ákváðum að það sem skeði í Cajamarca varð eftir í Cajamarca! hahaha...
Síðan var vaknað snemma á sunnudagsmorgun til að fara að skoða einhvern stað þar sem fólk bjó og hvernig það skar jörðina til að koma vatni þangað sem það þurfti, það er enn í dag óleyst ráðgáta hvernig þeir gerðu það. Þetta var það hæðsta sem við fórum svo að anda þarna var svolítð erfitt, sérstaklega með þynnkunni. Hahahah.. Annars var þetta mjög mjög fallegt, og þarna býr líka fólk þar sem er ekkert rafmagn eða neitt og maður sér á fólkinu að það er fátækt og gerir allt sjálft og lifir held ég á ferðamönnum. T.d. ef við vorum nálægt byggð voru alltaf krakkar að betla pening, litlu greyin, en okkur var sagt að hundsa allt svona, því maður veit aldrei hvað eru þjófar eða eitthvað þannig. Svo maður varð bara að labba framhjá.
Lítil fátæk stelpa sem við mættum.
Í ferðinni hittum við einnig einn skiptinema sem býr í Piura og var það nú frekar gaman. Hún var þarna með skólanum sínum. Eftir ferðina var borðað síðan lagst niður og ég steinsofnaði! Síðan fórum við á markaðina til að kaupa minjagripi og ég keypti mér nú bara 4 armbönd, gaf eitt og fékk eitt gefins. Núna er ég sko að safna armböndum fyrir staði, atburði og fólk svona í minningu um perú og byrjaði það þarna. Einnig fékk ég mér falleg armbönd með stjörnumerkinu mínu á! Um kvöldið var síðan borðaður kvöldmatur , tekið sig til og farið heim.
Dagurinn í dag er svo búinn að fara í nákvæmlega ekki neitt, jú ég þvoði þvottinn minn og fór í sturtu! Fór ekki í skólann þar sem við komum heim kl 5 í morgun og þá var maður frekar illa sofinn og svona. Svo er það bara skóli þessa viku og frí næstu að öllum líkindum þar sem það eru próf og við erum að taka þátt í þeim þar sem allt er á spænsku og við höfum ekki einu sinni enþá farið í alla tímana okkar.
Jáá og ég vil biðjast afsökunar á lélegri íslensku, þar sem ég er farin að hugsa algjörlega á ensku með smá spænsku. Það er ekki einu sinni fyndið hvað ég hugsa ekki lengur á íslensku, þegar ég tel, eða er að hugsa um eitthvað er það yfirleitt á ensku.
Annars hef ég nú ekkert meira að segja í bili, vildi nú bara segja ykkur frá þessari mögnuðu ferð :)
Kossar og knús frá Perú
Freydís Þóra!
p.s. komnar nýjar myndir á dropboxið frá ferðinni :)