Tuesday, 2 April 2013

Trujllo, Tumbes og 5 min í Ecuador!

Jæja, þá er einu öðru ferðalaginu lokið! Skellti mér í "norður ferðina" með AFS .. Hún var semsagt 3 staðir í norður Perú, Trujillo, Chiclayo og Tumbes .. En auðvitað sleppti ég Chiclayo þar sem ég bý þar .. Síðan eftir ferðina var midstay camp, afsakið en ég hef ekki hugmynd um hvað það er á íslensku:/, og var það haldið í Tumbes líka, allir skiptinemarnir saman í 2-3 daga :)
Fyrst var farið til Trujillo og var alveg yndislegt að hitta alla, eða þá sem komu, og vera með skiptinemunum! Trujillo er mjög falleg borg og ekki eins heitt þar og hérna svo ég elska hana bara! Fyrst var bara farið í göngutúr aðeins um bæinn og skoðuðum um .. Síðan voru farið á einhver 2 söfn sem ég náði ekki mikið sögunni af því maður var eiginlega alltof upptekinn að vera loksins með skiptinemunum aftur! Einnig byrjaði ég að kynnast æðislegu fólki þar sem ég var greinilega hálf sofandi fyrstu dagana í Lima, kynntist nánast engum þar! hahaha..
Seinasta daginn í Trujillo fórum við svo á ströndina! Alveg ótrúlega falleg ströndin þar en svo alltof heitt þannig ég lá bara í skugganum! hahaha .. Svo fengum við ekki að fara í sturtu áður en við fórum í rútuna til Chiclayo svo ég ákvað að skella mér ekkert í sjóinn, þótt það var alveg fáránlega freistandi!
Svo var skemmtileg 3 tíma rútuferð til Chiclayo í ógeðslegri rútu, svo lítil og ekkert pláss! Ömurlegt alveg -.-
Síðan var það bara smá chill dagar í Chiclayo með Luis, en greyið var með sýkingu í maganum svo hann var ekki sá allra hressasti :) En við skelltum okkur samt út með skiptinemunum eitt kvöldið og dönsuðum af okkur rassgatið! Svo gaman .. hahaha..
Svo skelltum við okkur til Tumbes, í annarri ömurlegri rútu! Ekkert pláss og það í 8 tíma held ég! Svaf varla neitt á leiðinni -.- Ekki var það skárra að þegar við komum til Tumbes þurftum við auðvitað að bíða í svona hálftíma eftir sjálfboðaliðunum til að sækja okkur, og það klukkan 5 að morgni til! Fengum loksins að sofa aðeins ! en bara til hálf 8 því klukkan 8 var morgunmatur og svo áttum við að gera eitthvað! En ekkert var gert fyrr en um 11 leytið og var okkur bara sagt að við værum að fara á ströndina :) Tókum rútu í svona hálftíma og þaðan þurftum við að taka bát yfir eitthvað vatn sem var frekar kúl! Síðan komum við að ströndinni þar og var það æðislegt! Við vorum nánast ein þar allann tímann og var veðrið gott, sjórinn heitur og passlega góðar öldur! Svo þurftu ég auðvitað að stíga ofaná eitthvað í sjónum og meiða mig og neiddist til að slaka aðeins áá, en það var gott, var farin að fá sólsting! Svo skelltum við okkur aftur í bátana og fengum eh ferð um vatnið að sjá einhverja fugla en þar sem allir voru að tala svo mikið í bátnum heyrði ég ekkert í kallinum sem var segja frá þessu! hahha .. svo fórum við á krókódílaeyjuna og var þar allt fullt af allskonar krókódílum! og þeir litlu voru svo krúttlegir! Svo var hægt að taka mynd með krókódíl, en þar sem röðin var svona hálftími nennti ég því nú ekki! En svo missti einn skiptineminn krókódílinn og hann hljóp í burtu í gegnum hópinn! hahahaha.. Svo fyndið þar sem hópurinn er svona 60% stelpur! Eftir það var hádegismatur og fengum við ceviche og eh hrísgrjón með litlum kolkröbbum! Elska kolkrabba! Síðan komum við heim seinnipartinn og var planið bara sturta og kvöldmatur og svo bara allir með öllum um kvöldið! æðislegt að lifa á hóteli með fullt af vinum þínum :)
Daginn eftir skelltum við okkur í drullubað! Hahaha.. ég ætlaði sko ekki að þora útí en svo skellti ég mér auðvitað! Þrátt fyrir að hafa verið verulega ógeðslegt var þetta verulega gaman! Fyrir utan partinn að hafa drullu allstaðar og engin sturta! Skoluðum okkur með smá vatni og fórum í hádegismat! Síðan var farið á ströndina það sem eftir var af deginum, það var fínt til að þrífa sig aðeins! Um kvöldið var síðan smá partý á þakinu :)
Seinasta daginn í ferðinni var farið í bæjarskoðun og röltum við aðeins um bæjinn og skoðuðum okkur um! Fengum gæslu með okkur, fimm lögreglumenn röltu með okkur um bæinn þar sem þetta er frekar hættulegur staður víst! Eftir það var frír tími því allir voru að koma til tumbes í midstay búðir (ekki alveg með á hreinu hvað þetta er á íslensku), búðir sem eru semsagt í miðjunni á dvölinni okkar hérna :) Fólk var að koma allan daginn og var bara chillað langt fram á kvöld ..
Næstu 2 dagar fóru í það að tala um reynsluna okkar hérna, og fékk minn hópur tíma, og vera á ströndinni! hahah .. Að fá tíma hérna er frekar gaman því 5 mín hjá fólki hérna er að minnsta kosti 20 min!
Svo fékk ég að vita að ég þurfti að vera 2 dögum lengur í Tumbes því ég þurfti að fara til Eucador, en fór bara yfir landamærin og til baka -.- Var hjá fjölskyldu sjálfboðaliða og dó úr hita allan daginn held ég! og ekki með neina inneign svo ég gat ekki náð á neinum skiptinemanum þar! Hitti þau reyndar síðasta kvöldið og var það fínt :)
Síðan ég kom heim er lítið annað en leti búin að vera í gangi! Jú ég skellti mér í eitthvað partý á ströndinni um miðjan sunnudag og hálf veik! hahah var samt mjög gaman! En framundan er ekkert nema að njóta frísins og læra marinera! Þetta verður eitthvað!

Kemur vonandi eitthvað blogg í framtíðinni, en þar sem ég er extraléleg lofa ég ekkert fljótlega! hahaha..

Kossar og knús frá Perú :)
Freydís Þóra

Myndir koma seinna þar sem ég finn ekki snúruna til að setja þær í tölvuna mína :/