![]() |
| Starbuks, okkar bestu vinur hérna! |
Fyrsta helgin eftir að ég kom heim fór ekki í mikið, nennti ekki í partý með skiptinemunum á föstudeginum því mig langaði bara lítið að fara að drekka og eitthvað svoleiðis svo ég ákvað að fara bara út í göngutúr með Luis. Skiptinemarnir fannst það eitthvað skrítið og héldu nú að það væri nú eitthvað að mér, en var bara löt. Svo endaði helgin bara í leti!
Næstu 2 vikur fóru bara í skólann og frí og hanga með skiptinemunum. Held ég hafi lítið spennandi gert.
Seinasta vika fór svo öll í letilíf! Allir krakkarnir í skólanum voru í prófum, miðannarprófum, og við þurftum ekki að taka þau. Við tókum nú samt eitt próf, í ensku, og það var nú bara gefið próf. Við nenntum ekki einu sinni að bíða eftir einkuninni, því okkur var svo sama, hahaha...
Seinastu helgi kom svo Diana heim og þá ákváðum við skiptinemarnir að koma saman og búa til pizzu.Án efa sú versta sem ég hef smakkað, því ég kann ekkert á hráefnin hérna svo ég setti bara eitthvað á pizzuna, var ekkert gott. Þannig það endaði með því að ég borðaði bara eina sneið! haha.. Síðan fór ég bara heim snemma, var þreytt og Diana líka. Daginn eftir fór Diana og dagurinn fór í letilíf.
Síðan hefur þessi vika farið smá í skóla og smá í leti líf því það var frí á mánudaginn, miðvikudaginn og fimmtudaginn. Samt ekki á mánudaginn en okkur var sagt það svo við fórum ekki í skólann, á miðvikudaginn því kennarinn var ekki og á fimmtudaginn því það er einhver dagur dauða fólksins eða eitthvað álíka. Í gær flutti síðan Maurah, annar belgíski skiptineminn, inn til mín því það hafa verið vandamál í fjölskyldunni hennar og þetta verður bara æðislegt að hafa hana hérna :)
| Luis að elda :) |
Reyni nú að vera duglegri, en þegar það er lítið að gera man ég ekkert eftir því að blogga, finnst það ekki nógu merkilegt! haha..
Kveðjur úr hitanum í frostið þarna heima!
Freydís Þóra :)
