Jæja þá loksins kemur þetta blessaða blogg! Vúúhúúú :D Já ég skellti mér semsagt í 14 daga ferðalag .. eða 12 held ég, að ferðast tók nú sinn tíma svo þetta er allt í rugli í kollinum! hahaha.. En jáá og hafði hann Luis minn með mér sem var yndislegastur að draga mig á hina og þessa staði sem eru ekkert ferðamanna staðir en mjööög gaman að skoða.. Allavegana, ætti að byrja á fyrstu ferðinni!
Fyrst fórum við til Jaén með frænku hans Luisar því mamma hennar býr þar, frítt húsnæði!! hahah.. Fyrsta daginn skelltum við okkur í sund, hélt nú bara venjulegt sund, enda steikjandi hiti! en neinei þetta var einhver agalega krúttlegur garður með dýrum, leiktækjum, veitingastað, bar og sundlaug :) agalega kósý :D og eyddum nú bara mest öllum deginum þar ! Skemmtilegt það að Luis er ekkert vel við sundlaugar því hann fékk einhverja sýkingu úr sundlaug fyrir svona 5 árum, eeen ég dró hann nú með mér og hann skemmti sér konunglega :D! Kvöldið fór svo bara í hvíld og sjónvarpsgláp, og reyna að sofna fyrir hita!! Daginn eftir var planað að fara að einhverri á, en enginn bauðst til þess að keyra og leiðin frekar hættuleg .. Svo einn vinur frænku Luisar bauð okkur í "sveitina" (hef enga aðra lýsingu á þessu).. Ekkert langt frá Jaén, uppí fjalli og þar var hús með nokkur húsdýr og svo bara frumskógur! Dásamlegt! Fékk alveg að sjá Mangó, Kakóávöxtinn, kaffiávöxtinn og fullt af blómum og öðrum ávöxtum bara þarna á trjánum! og auðvitað fékk ég að smakka allt! :D Svo voru þau líka með svona lítil vötn með fiskum frá Níl í, eða svo sögðu þau, ef ég skyldi rétt ! hahaha.. Deginum var bara mestmegnis eytt þarna sem var alveg dásamlegt! svo fallegt og að sjá landslagið og svona! Um kvöldið fundum við Luis okkur þennan agalega krúttlega pizzastað með alveg geggjaðri pizzu (erfitt að segja það hérna ef þetta er ekki dominos eða pizza hut!) og áttum bara yndislega stund þetta kvöld :D! Síðasta almennilega daginn var síðan farið að ánni, sem var ekkert eins spes og allir höfðu sagt mér en landslagið í kring var æðislegt og fjöllin svo ólík fjöllunum heima! og svona litlir básar þar sem fólk kemur stundum saman og drekkur og hefur gaman og stundum tónleikar og eitthvað :) Þegar við komum til baka var bara rólegheit og seinasti dagurinn fór í að pakka, þrífa smá og smá sund aftur! Það var svo gott að komast í þessa sundlaug! svo fáránlega heitt þarna! Svo var bara lagt af stað heim aftur.. Því við höfðum einn dag í chiclayo til að þrífa föt, kaupa miða og gera til fyrir kaldari ferð í hálendið!
Ooog um kvöldið þann dag sem við komum heim lögðum við af stað í okkar annað ferðalag, en bara 2 í þetta skipti! Fyrst þurftum við að fara með rútu til Lima og tekur það ekki nema 12 tíma .. Nema heyrðu, það var svo mikil umferð að það tók okkur 14 tíma að komast á rútustöðina - held alveg 3 eða eitthvað bara að ferðast innan Lima - svo við vorum klukkan sirka 10 um morguninn í Lima! Og það leiddi að því að við misstum af rútunni okkar til Huanuco og næsta ferð var ekki fyrr en 21:15 svo við þurftum að eyða deginum í Lima! Sem betur fer fengum við nú að skila bakpokana eftir á rútustöðinni, hefði ekki vilja burðast með 10 kíló á bakinu plús litla bakpokann! haha nei takk ( ein ekki alveg undirbúin í stórt bakpokaferðalag!) Já þá röltum við bara um Lima, byrjuðum á að fá okkur morgunmat, samloku og safa :) Síðan fórum við í eitthvern riiisa riiisa stórann markað með fullt af æðislegum hlutum, því miður gleymdum við okkur aðeins í að skoða og tókum engar myndir þar :/ En fann þar Padington hatt, því Padington er nú frá Lima! langaði ýkt mikið í hann, en kostaði of mikið!! Svo eru fullt af eeeld eeeld gömlum myndavélum og ég og Luis vorum alveg sjúk í að kaupa eina! Shiit hvað mig langar í eina! svo æðislegar!! Eftir markaðinn fundum við okkur einhvern garð og skoðuðum einhvern lítinn markað (markaðir eru aalllstaðar!), settumst niður, sáum leiklistarskóla og röltum um garðinn. Síðan var kominn tími á hádegismat og kom ekkert annað til greina en ceviche - hrár fiskur með sítrónu, salti, pipar, lauk og svo kartefla til hliðar og mais - enda elskum það bæði! Eftir hádegismat ákváðum við að labba lengra og fundum Maria Jesús garðinn .. Mjög mjög mjöög fallegur garður með öllu, fótboltavöllur, körfuboltavöllur, fólk að dansa, tennisvöllur oog bara svo margt fleira og við ákváðum að vera bara þarna þangað til að rútan færi, svona til að villast ekki í Lima! Síðan beið okkar 8 tíma rútuferð í viðbót! gaman gaman! Þegar við komum svo loksins til Huanuco fórum við beint heim til fólksins sem við gistum hjá sem er mormónafjölskylda og er alveg frábær í alla staði! Þau eru samt frekar fátæk svo húsið er mjöög lítið, strákarnir 2 sofa í koju og hjónin í hjónarúmi en er þetta eiginlega bara eitt stórt herbergi allir saman, smá veggur milli strákanna og hjónanna. Klósettið úti og eldhúsið í öðru húsi en mjög lítið! Vildi ekki vera að taka myndir af þessu, því hélt nú að það væri kannski ókurteysi ..Allavegana við fengum okkur að borða, reyndum að gera uppkast af plani fyrir næstu daga og lögðum okkur! Svo tóku pabbinn og 2 strákarnir mig með sér á rúntinn meðan mamman og Luis voru að elda! hahaha.. og fékk að sjá smá af bænum :) Heima var svo maturinn tilbúin og var borðað, lagað planið okkar góða og svo farið að einhverju vatni með hundinn að synda og njóta tilverunnar :D Svo notarlegt! Seinnipartinn röltum við Luis aðeins um bæinn, keyptum okkur lyf því við vorum að fara í 4330 m hæð, svona til að verða ekki veik! Síðan komið heim, borðað, pakkað niður aftur og skellt okkur að sofa :)
Daginn eftir var planið að fara til Cerro de Pasco og gerðum við það, í 4330 m hæð og ískalt!! Pabbinn skutlaði okkur á stöðina til að fara með bíl til Cerro. Tók það um 2 tíma held ég og þar sem við tókum pillurnar á leiðini steinrotuðumst við, agalega erfiðar þessar pillur! Þegar við vorum komin til Cerro pöntuðum við okkur gistingu, skildum bakpokann eftir og fórum svo að skoða dýragarðinn úr steinum, semsagt stórir steinar sem líta eitthvað út eins og dýr, sá ekki mikið meira en íkorna samt! Eeeen vóó hvað er erfitt að labba svona hátt uppi! Náði ekki andanum, var dauðþreytt ! Og okkur tókst nú að villast þarna því við höfðum engan leiðsögumann og þetta er bara risastórt opið svæði! En sem betur fer fundum við einhverjar stelpur sem hjálpuðu okkur að hoppa yfir gaddavír og klifra kletta! Bara gaman að því, een svo var bara myndataka í svona 20 min held ég! haha gaman að vera ljóshærð! Síðan heyrðum við í þrumum og sáum rigninguna og skýin nálgast svo við flýttum okkur niður og fundum combi(smárúta) til að komast aftur í bæinn.. Þar ákváðum við að leggja okkur, því þetta var nú alls ekki auðvelt að vera þarna, en það tók sinn tíma þar sem það eru engir ofnar í Cerro og það var ííískalt!! Þegar við vöknuðum aftur var klukkan svona 9 um kvöldið svo við ákváðum að drífa okkur út og finna mat .. Fundum þennan krúttlega safabar og fengum okkur safa og ávaxta salat :) Eftir það röltum við bara í kuldanum um bæinn og fundm meira að segja snjó og fórum í snjóslag! því miður var engin myndavél með í þeirri ferð! Síðan var bara farið inn og sofa! Daginn eftir var vaknað nokkuð snemma, pakkað niður og síðan farið að skiltinu þar sem stendur : Bæjarstjórn Pasco býður þig velkomin/nn til hæðstu borgar í heimi .. Þurftum sönnun! Svo ákváðum við að kíkja á markaðinn en var ekkert ofmerkilegt neitt þar en hefði ég verið ein hefði ég villst! Eftir það skelltum við okkur uppí næstu rútu og til Junin!
Þegar við komum útúr rútunni í Junin og löbbuðum niður eina götu kom á móti okkur einhver skrúðganga með fólki í allskonar perúskum fötum og tónlist .. alveg æðislegt að sjá þetta! Síðan fórum við og hittum eitthvað fólk sem Luis þekkir þarna og fengum hjá þem súpu og brauð :) Síðan röltum við aðeins um bæinn, tókum myndir og fundum geggjað krúttlega lestarstöð! Síðan ákváðum við að halda ferðinni áfram og ætluðum að fara til Ticlio þar sem átti að vera snjór en bílstjórinn hætti við á seinstu stundu og við enduðum í La Oroya, sem er alveg fínn staður. Fjöllinn þar eru alveg æææðisleg! Hvítur steinn! og svo lestarteinar allstaðar því það eru víst gullnámur þarna allstaðar í fjöllunum .. Þarna var klukkan að ganga 6 og við ýkt pirruð útí bílstjórann svo við fundum okkur stað til að gista, tókum loksins sturtu, því þarna var heitt vatn í fyrsta skipti í 4 daga og í öllum þessum kulda! Skelltum okkur síðan út að skoða okkur um, borða og hafa það kósý :) Morguninn eftir skelltum við okkur svo til Huancayo..
Um leið og við vorum komin til Huancayo ákváðum við að drífa okkur að kaupa miða til Huanuco til að vera viss um far .. En nei þá var bara eitt sæti eftir :O Svo við höfðum ekki grænann grun um hvað við áttum að gera! Skelltum okkur í aðalgarðinn til að hugsa aðeins og ákváðum að þetta myndi einhvernveginn reddast :) Síðan röltum við í markaðinn og þar um .. tók sinn tíma enda ekki nema 8 húsaraðir eða svo! En ótrúlega gaman og fullt af flottum hlutum sem mig langaði að kaupa! een hugsaði útí það að það væri varla einhver tilgangur með því! hahaha.. En ég fékk nú samt 4 armbönd og keypti mér eina þykka og góða peysu .. mín var kremuð og Luis keypti sér eins bara mosagræna! Svo krúttleg í stíl sko! hahaha.. Eftir það ákváðum við, fyrst við vorum að fara daginn eftir til Tingo Maria frá Huanuco(planið, en ætluðum með fjölsk. í Huanuco) afhverju ekki þá bara að taka frá Huancayo til Tingo Maria .. Svo við fórum og keyptum 2 seinustu miðana þangað! Hjúkk! Fórum síðan í verslunarmiðstöðina til að borða og fara á almennilegt hreint klósett (almenningsklósett hérna ekkert svo æðisleg!) og eftir það tók bara við rútuferð til Tingo Maria!
Við vorum í Tingo Maria klukkan 6 um morguninn svo það var ekki búið að opna taxastöðina sem fer með fólk í frumskóginn sem er allt í kring svo við þurftum að bíða, röltum um borgina/bæinn(ekki viss) og komumst að því að hún er ekkert svakalega falleg neitt! Þarna borðar fólk samt snáka og apa og ætlaði Luis sko að leyfa mér að smakka, en fundum ekki veitingarstaðinn með þessa hluti .. Svo loksins opnaði Taxastöðin og við fórum fyrst að einhverjum æðislegum helli uppí fjalli og í miðjum frumskóginum .. Í hellinum voru æææðislegir grænir fuglar, frekar óþolandi hljóð, en þeir voru svo fallegir! een ekki náðist mynd af þeim, frekar hraðir! ooog leðurblökur og svona þúsund leðurblökuegg! Vorum þarna heillengi, en hellirinn er ekkert það stór, það var bara svo margt að skoða inní honum því steinnin í honum er svo fallegur og fullt af allskonar skordýrum og svona! oog vatn beint úr fjallinu var frekar þæginlegt þarna! Smá heitt í frumskóginum, og skrítið að koma úr öllum þessum kulda í allan þenna hita! Síðan eftir hellinn löbbuðum við aðeins lengra inn í skóginn og fundum litla tjörn með svo fallega hreinu vatni! alveg yndislegt :) En allt í einu heyrðum við eitthvað urr en sáum ekki neitt neinstaðar og Luis vildi nú samt endilega halda áfram, en ég var of hrædd svo við snérum við! hahaha.. En þarna smakkaði ég líka kókosmjólk beint úr kúlunni og ávöxtinn líka .. Hélt nú að þetta væri betra ! Eeen allavegana, næsta stopp var síðan einhver foss .. Þegar okkur var keyrt að honum komum við að krökkum sem voru að leika sér með letidýr! aaaw svo krúttleg! ég vil eitt með mér heim! Eeen svo tók við 10 min ganga að fossinum og þegar við komum þangað var fólk að synda, og fossinn er eiginelga svona tvöfaldur .. fyrst einn og smá pollur til að synda, sem fer niður í 2 litla fossa og í anna poll til að synda og við vorum í neðri og enginn var þar, bara í efri, og ákváðum að skella okkur að synda! en ekki hvað! og skemmtum okkur konunglega! fórum svo að efrifossinum og skoðuðum okkur um og keyptum okkur grillaðan banana og héldum síðan af stað niður til Tingo Maria aftur og fundum okkur bíl þar til að fara til Huanuco :)
Við vorum komin aftur til Huanuco um hádegi, en svo svo svo þreytt því ekki sváfum við mikið í rútunni á leiðinni til Tingo Maria svo það var bara borðað og svo lögðum við okkur! Sem var kannski aðeins of lengi! hahaha.. vöknuðum um 6 leytið og þá var bara fengið kvöldmatur og talað aðeins við einhverja mormóna og svo fjölskyldustund saman :) Fyrst var ég svolítið hrædd því þau komu með sálmabækur og mormónsbók svo ég vissi ekki við hverju ég átti að búast en þetta var bara nokkuð gaman! vorum bara að spjalla um fjölskyldur og tengsl og eitthvað .. oog svo fórum við í einhvern leik með vatni og eitthvað sem var geggjað gaman! hahah.. Síðan var það bara farið að sofa :) Það er alveg ótrúlegt hvað maður var þreyttur eftir allt þetta ferðalag! Dagurinn eftir fór ekki í mikið annað en að sofa, pakka, borða, vera með fjölskyldunni , rölta um Huanuco og taka myndir :) Einnig fórum við á körfuboltaleik hjá eldri stráknum í fjölskyldunni sem var bara mjög gaman og eyddum kvöldinu með þeim og að klára að pakka því að við þurftum að fara morguninn eftir .. Jáá og þann morgun vaknaði ég 7 til að taka ís ís ís kalda sturtu og það var nú ekkert það heitt úti heldur en ég er enn á lífi! haha.. een jáá og pakka og borða, svona því framundan var 24 tíma ferðalag heim til Chiclayo! eeen ekki má gleyma því að mamman gaf okkur brauð til að borða á leiðinni því í Huanuco er eitt það besta brauð sem ég hef lengi smakkað! Svo var kvatt og lagt af stað heim!
Ferðalagið var ómerkilegt nema það að við komum 19:16 til Lima og rútan okkar til Chiclayo fór klukkan 20:00 en var ekki á sama stað svo við þurftum að drífa okkur í að ná bakpokunum okkar úr rútunni, síðan nánast hlaupa á næsta stað til að kaupa miða og koma okkur í rútuna. Náðum því sem betur fer á tíma og náðum meira að segja að borða aðeins áður en við fórum í rútuna ! Síðan var bara farið heim :)
Svo þegar heim komið langað mig í myndirnar, til að geta bloggað og sett inn myndir en nei tölvan mín var eitthvað treg svo Luis þurfti að taka kortin með sér heim og setja í sína tölvu! En í gær fékk ég þær svo loksins og eru þær komnar á fésið :D
Síðan ég kom heim hef ég lítið gert en að hanga heima, sofa .. Reyndar skellti mér í að borga 2 ferðar með AFS hérna til Trujillo og Tumbes sem er seinna í febrúar og svo aðeins með Luis :)
Í gær töluðum við, ég og Luis, svo við mömmu, Halla og Shek og var það alveg æðislegt! Og núna er planið að vera hérna með Mauruh í dag og klára að horfa á seinustu 2 þættina af Gossip girl :) hahaha..
Ætli þetta sé nú ekki komið nóg í bili :)
Myndir komnar inn á facebook en ekki í réttri röð og kann ekki að laga það :/ een ætla að setja inn bæina á myndirnar, en er ekki búin að því .. bara láta ykkur vita :)
Besos!
Xoxo
Freydís Þóra ferðalangur!
p.s. sorry að það eru engar myndir en hef meira en 500 myndir og allar í vitlausri röð og ætlaði að setja inn einhverjar, en það er bara svo ruglingslegt að fara í gegnum þetta! Svo þið verðið bara að skoða þær á facebook :)