Sunday, 22 July 2012

Skiptinám :)

Sæl verið þið :)
Ég heiti Freydís Þóra, er átján ára og kem frá Stöðvarfirði. Ég ætla hérna að blogga, eða reyna að blogga, um ferð mína sem skiptinemi til Perú.
Já ég er semsagt að fara sem skiptinemi til Perú og fer núna í september og kem aftur heim í júlí á næsta ári. Mig hefur lengi langað að fara sem skiptinemi en var alltaf svo heimakær og vildi helst aldrei fara frá Íslandi, það er sko best hérna! Svo það varð eiginlega aldrei neitt úr málunum. Síðan allt í einu ákvað ég bara að skella mér, og tók ákvörðunina algjörlega á seinustu stundu. Ég rétt slapp að sækja um skiptinám og var þá bara Perú eða Paragvæ í boði og leist mér betur á Perú. Ég ætlaði alltaf að fara til suður-ameriku hvort eð er svo þetta var bara fínt að fá að fara til Perú.
Já, hef fátt annað að segja í bili. Ég skrifa nú örugglega eitthvað næst bara þegar kemur að brottför eða þegar ég er komin út. Fer eftir því hversu dugleg ég verð með þetta blogg!

Jæja, bæjó :)

1 comment: