Monday, 1 October 2012

Skólinn.

Mér fannst nú orðið tímabært að fara að "update'a" ykkur um mitt líf, eins og má orða á "góðri" íslensku. Ekkert of mikið hefur nú verið gert þrátt fyrir það en ætli maður segi ykkur ekki aðeins frá skólalífinu og svona.

Fyrir rúmum 2 vikum byrjuðum við loksins í skólanum. Fyrstu dagana var bara að kynnast fólkinu, eða þau meira okkur þar sem ég hef ekki grænann grun um hvað helmingurinn af þeim heitir. Finna stofurnar, koma of seint í tíma ( ekki okkur að kenna, stundaskráin okkar var vitlaus). Að sitja á sama stað í sama tíma í 5 klukkustundir er nú samt ekki gaman skal ég segja ykkur, sérstaklega þegar maður skilur nákvæmlega ekki neitt. Svo fyrsta vikan var bara þannig að maður gerði ekkert.
Síðan kom helgin. Þá fór ég út með Luis (ur bekknum),  Hönnuh (einum skiptinemanum), Isabel (systir) og kærasta hennar. Við fórum á pöb og svo á diskó en ég þurfti að vera komin heim snemma svo það var lítið dansað. Laugardagskvöld var ég með Hönnuh og síðan for ég með Diönu, systir, í eitthvað afmælispartý á 8undu hæð í blokk, og íbúðin samt á 2 hæðum. Partýið var geðveikt, það var plötusnuður og ljós og læti, og svo ótrúlega góð kaka. Daginn eftir þurfti samt Diana að fara, vegna vinnu, til Cajamarca og verður þar í 3 - 4 vikur! Mér finnst það nú ekkert sniðugt að hafa hana svona í burtu. Já og ég fékk held ég naggrís í matinn og ef svo er þá eru naggrísir eitt það besta sem ég hef smakkað, það get ég svo svarið!
Skólavika nr. 2. Kennarar byrjuðu að láta okkur læra eitthvað á spænsku, því ein af okkur skiptinemunum talar spænsku, en hún þolir ekki að þurfa að þýða fyrir okkur svo það er eiginlega jafn tilgagnslaust og að hafa ekkert að gera. En við vorum þrátt fyrir það sett í hópa og látin vinna verkefni og svona, gekk ekkert alltof vel og þurftum aldrei að skila neinu inn.
Já, ég ætti kannski að minnast á blessuðu borðin/stólana í skólanum hérna. Þetta er semsagt bara einn og sami hluturinn, svona eins og í bíómyndunum. Nema hvað að borðið er svo lítið að það kemst ein bók og pennaveski fyrir þar. Ég veit fyrir víst að þetta fyrirkomulag myndi aldrei ganga upp í MA, svo mikið er víst. Þið fáið kannski að sjá myndir af því, ef ég man einhverntímann eftir því að taka myndir af því.
Aftur að skólavikunni. Á miðvikudeginum fórum við með skólanum til Laqiupampa. Það var fínasta ferð, stoppuðum einhverstaðar á leiðinni og löbbuðum upp hálft fjallið til að fara á svo fallegan stað að synda. Váá þetta var svo fallegt þarna, hefði helst bara vilja flytja þangað! Myndir koma inn á dropboxið í dag vonandi. Eftir það fórum við svo til Laquipampa og ég veit eiginlega ekki enþá hvað við vorum að gera þar! Við borðuðum, löbbuðum upp einhvert, þar var eitthvað sagt og síðan löbbuðum við aftur niður og fórum heim. En þessi staður var ekkert eitthvað sérstakur, bara bær uppí fjalli, sem er ekkert það óalgengt hérna svo ég veit ekki alveg hvað var málið með það. En eftir daginn var ég alveg búin á því og daginn eftir var bara hálf sofið í tíma og allan daginn nánast..
Föstudagskvöldið fór ég síðan út með Luis bara að borða og rölta um bæinn og svona. Laugardaginn fór ég út um hádegi, kom heim til að skipta um föt og fór síðan út með Maurah, Ivan og Walter á pöb. Þegar við tókum taxa á leiðinni heim til mín rakst annar taxi utan í okkar taxa og stakk svo bara af. Þannig við fórum að elta hann og svo fundum við löggu og hún elti hann og við líka. Hahaha, þetta var eitthvað nýtt allavegana, taxaeltingaleikur. En svo þurfti ég að fara heim. Á sunnudagsmorguninn mættu síðan allt í einu hópur úr bekknum mínum heim til mín til að taka mig með sér á safn fyrir eitthvað verkefni, svo ég væri nú örugglega með á myndunum.  Þannig ég klæddi mig og fór með þeim. Eftir það fórum við heim til einhvers þeirra og sátum bara og "spjölluðum", ekki mikið sem kom uppúr mér þar sem þau tala enga ensku og spænskan mín eru bara eitt og eitt orð. En þetta var samt sem áður mjög gaman. Síðan fór ég heim, fór í sturtu og fór síðan í mat til Maurah, þar sem hún gerði yndislegt spagetti bolognes! Það var guðdómlegt, ég át hinsvegar aðeins of mikið kannski!
Svo er bara önnur skólavika að byrja, vonandi sú seinasta í þessum ferli þar sem ég ætla að skipta yfir á verkfræði þar sem ég get lært stærðfræði og efnafræði. Það er allavegana eitthvað sem ég get, annað en að sitja og ekki skilja neitt og ekki einu sinni hafa áhuga á því að skilja neitt. En vonandi fáum við að skipta og þá verður þetta fínt.

En jáá fleiri myndir koma vonandi bráðlega inn á dropboxið .. Reyni í dag annars á næstu dögum ..

En ætla nú að segja þetta gott í bili, nenni ekki einu sinni að setja inn myndir í þetta skipti þar sem mig langar bara að fara að leggja mig!

Kossar og knús til allra heima og njótiði veðursins sérstaklega!

Ciao!

3 comments:

  1. OKeey ! Búin að reyna að kommenta hérna skil ekki hvernig þetta virkar eiginlega :O
    Ógeðslega gaman að lesa þetta og vonandi get ég talað við þig á skype bráðlega.
    Hlakka til að lesa meira frá þér darling ;*

    KV Jórunn Dagbjört

    ReplyDelete
  2. Ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt Freydís! og það sem að ég sakna þess að tala við þig á facebook.. það er ekkert lítið sko! :o En vonandi ertu að njóta þín í botn í Perú og ég hlakka til að heyra meira frá þér ! :D
    - Hafrún

    ReplyDelete
  3. Oh hvað ég öfunda þig sæta! Var að skoða myndirnar á dropboxinu og hefði aaaalveg viljað henda mér oní þetta vatn sem að þið voruð að synda í!
    Facebook er allt hálftómt án þín haha! Sakna þín eiginlega allt of mikið og get ekki beðið eftir að fá þig heim! MA er ekki eins án þín sæta!
    Þarf að fara að heyra í þér í sambandi við útskriftarferðina okkar á næsta ári!
    Skemmtu þér ógeðslega vel og ég vil hafa þig reiprennandi í spænsku við heimkomu kæra!

    ps. VERKFRÆÐI, hallelúja!

    ReplyDelete